Rykagnir í andrúmslofti eiga sér ólíkan uppruna, til dæmis jarðvegsagnir sem vindurinn feykir upp, efni sem koma upp í eldgosum eða mengun frá iðnaði. Fleiri þættir leggja til ryk í andrúmsloftið og þar með það ryk sem við sjáum inni hjá okkur. Má þar nefna umhverfið í kringum hús, til dæmis hvort mikið er af sandi eða mold sem getur borist inn. Einnig skiptir máli hversu mikil bílaumferð er þar sem ökutæki skila bæði ögnum út í andrúmsloftið við bruna og losa einnig um efni í slitlaginu sem berast inn í hýbýli. Hvort einhver vinna fer fram í nágrenninu, svo sem gatnaframkvæmdir, skurðgröftur eða bygging eða lagfæring húsnæðis hefur líka áhrif á hversu mikið ryk er í kringum okkur.
Mörg efni sem valda vanlíðan geta verið í lofti innandyra. Í ryki í húsum er að finna húðfrumur, örverur, gró, dýrahár og fleiri agnir. Utan á rykagnirnar festast svo rökgjörn efni sem gufa frá byggingarefnum, innréttingum, húsgögnum, textilvöru og gólfteppum auk hreinsiefna, ilmefna og fleiri efna sem er að finna á heimilum í dag. Það sem líklega skiptir mestu máli er að húsryk inniheldur í flestum tilvikum talsvert af rykmaurum, rykmauraskít, leifar eftir hamskipti og leifar dauðra maura. Í meltingarfærum rykmaura eru prótein sem valda ofnæmi og er mikið af þeim í skít mauranna. Um 90% af þeim sem eru með ofnæmi fyrir húsryki eru með ofnæmi fyrir rykmauraskít.
0 Comments
Hvað ætli nútímamaður þurfi að muna mörg pinnúmer/lykilorð ? Og þá á ég við ef gengi er útfrá því að fyllsta öryggis sé gætt, þ.e. noti ekki alltaf það sama. Reyndar er ég alveg viss um að næstum allir einfalda sér málið og nota sama pinnúmerið/lykilorðið að einhverju leyti. Nú er það reyndar svo að þessi auðkenni eru misflókin. Sum eru bara 4 stafir, önnur 6 stafir og allveg upp í 8 stafir. Stundum þarf að blanda saman táknum, litlum stöfum, hástöfum og númerum að einherju leyti....sem kemur heilmikið í veg fyrir að maður geti almennilega búið sér til minnisstætt auðkenni.
Jæja hvað þarf ég að muna mörg númer/lykilorð: Netbanki...sjálfur Netbanki ...UDN Kreditkort Debitkort sjálfur Debitkort UDN Skatturinn einkanetfang nr. 1 einkanetfang nr. 2 Vinnunetfang GSM pin. weebly - vefsíðan ljósmyndavefur - Flikr Íbúagátt Dalabyggðar Vinnan - kerfi til að árita reikninga Vinnan - tölvukerfið Vinnan - vefkerfi Rauðikrossin - sjálfboðaliðavefur Frímúrarar - félagsvefur Myndvinnslan picmonkey Live drive - tölvuský fyrir heimilið og síman. Vinnan - gátt hjá ráðuneytinu Vinnan - Mentor upplýsingavefurinn Aðgangur - fartölvan mín ....og eflaust miklu miklu fleiri. Enda stend ég reglulega á gati og er að láta senda mér þetta. Veit þá ekki hvar best er að geyma svona upplýsingar....alltaf að vera að segja ....legðu pinnið á minnið. Jú...eins og allir ...þá er það einmitt það sem ég geri. Það er eitthvað tregafullt við það að horfa á eftir fuglum og blómum þegar hausta tekur. Ég fylgist því grant með hvaða blóm lifa eitthvað fram á haustið. Reydar tek ég vel eftir því líka hvaða blóm koma fyrst á vorin.
Nú í byrjun október eru fimm vilt blóm enn í að blómstra á leið minni frá heimili að skóla:
Þá er Ramfangið í garðinum hjá mér þrælfallegt og í háblóma. Rósin blómstrar enn undir stofuglugganum og einhver blóm sem ég þekki ekkert eru líka enn að. Í fyrra stóð einstaka Vallhumall fram í nóvember og Tamfangið stóð í blóma til 20. nóvember. Ég man að þegar ég var að athuga þetta fyrir ca. 20 árum á Reykhólum náði Vallhumallinn ekki alltaf að blómstra fram í október. Svo er það vorið...maður fer svona eftir jólin að bíða spenntur eftir því. Nú síðasta vor tókst mér að borða í mars alveg sallafínar hundasúrur. Það hefur einu sinni gerst áður. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |