FerilskráMenntun:
1984 Samvinnuskólinn Bifröst Stúdentspróf/ verslunarpróf. 1989 Kennaraháskóli Íslands B.ed gráða til kennsluréttinda 2003 Kennaraháskóli Íslands 30 e diplomunám í upplýsingatækni 2004 Kennaraháskóli Íslands Framhald á mastersnámi. 2011 Háskóli Íslands MPA í opinberri stjórnsýslu. Annað nám: Fjölmörg námskeið bæði stutt og löng um stjórnun, fjármál og skólamál. Einnig sex styttri og lengri náms- og kynnisferðir til Hollands, Finnlands, Danmerkur, Englands, Svíðþjóðar og Skotlands. Atvinna: 1990 – 1996 Kennsla við Reykhólaskóla og Laugaskóla í Dalasýslu. 1996 – 2002 Skólastjóri við Grunnskóla Siglufjarðar. 2002 - 2009 Skólastjóri við Vallaskóla á Selfossi. 2009 - 2016 Skólastjóri við Auðarskóla Dalasýslu 2016 - Framkvæmdastjóri Fræðslunetsins - símenntunar á Suðurlandi. Uppruni/áhugamál/ félagsmál og fl. Fæddur og uppalinn á Efri - Brunná í Dölum. Bóndasonur. Reglulega setið í stjórnum félaga og eða samtaka í tengslum við áhugamál og Skólastjórafélag Íslands. Frístundir hafa í gegnum tíðina flestar verið helgaðar fjölskyldu. Spila bridge, hef áhuga á útvist og gönguferðum, áhuga á ljósmyndun og ýmsu er tengist tölvutækni. |
Hjartans málSkólinn
Í skóla ríkja hefðir, gildi og viðhorf sem hafa orðið til út frá samskiptum fólks í tímans rás. Öll lög, reglugerðir og áætlanir, sem skólar byggja á, snúast um fólk. Starfssemin snýst um viðhorf, tilfinningar og dyggðir en ekki tæki og tól. Skóli er fólk. Námið Samskipti ungs barns og kennara er margbrotið og stórt. Það snýst um tengingu sem þróast í traust. Nám verður alltaf auðveldara ef kennari og barn tengjast. Þegar barn og kennari eiga samskipti í fyrsta skipti fer fram gagnkvæmt mat. Barnið veit ekki hvenær það samþykkir kennarann í hjarta sínu, en þegar það gerist veitir það leyfi sitt til þess að kennarinn megi hafa áhrif á það. Þetta leyfi er afar dýrmætt og það má aldrei misnota. Nám, hegðun og vellíðan byggjast á þvi að hjörtu tengjast. Barnið Barnið er í umsjá skólans. Barn er ekki alltaf að stunda nám þegar það er í skólanum, en það er alltaf í umsjá skólans. Foreldrar hafa umhugsunarlítið ákveðið að treysta starfsfólkinu fyrir því dýrmætasta sem þeir eiga. Þeir tækju ekkert fram fyrir velferð þeirra. Ekkert. Að sama skapi má starfsfólkið ekki bregðast trausti samfélagsins. Umsjá, öryggi og líðan barnsins gengur alltaf fyrir námi. Góð líðan er forsenda náms. Kennarinn Kennsla er ekki einkamál kennarans i kennslustofunni. Barnið er ekki með skúffur sem tekur við þekkingu frá hverjum kennara fyrir sig. Barnið er vaxandi einstaklingur, sem er háður því að tengja allt sem hann lærir reynslu sinni og umhverfi. Barnið stefnir í það að verða heilsteyptur einstaklingur. Til þess að skapa slíkar aðstæður þarf samhent starfslið. Kennari er því alltaf partur af heild. Foreldrarnir Foreldrar eru sérfræðingar í börnum sínum. Samband foreldra við skólann er sjálfsögð endurspeglun þess hversu vænt þeim þykir um börnin sín. Skólinn leitar því stöðugt og af fyrra bragði til þessara sérfræðinga og bíður þeim til samstarfs. Samfélagið Í skólanum eru saman komin dýmætustu auðæfi samfélagsins. Öll samfélög verja skólana sína og skólamál snerta því viðkvæma strengi. Ákvarðanir í skólamálum eru því sjaldnast illa ígrundaðar, heldur miða allar að því að verja eða efla skólahald. Samfélagið lítur stöðugt til skóla sinna í leit að sjálfsvirðingu og sjálfsmati. Skóli á því að vera fyrirmynd samfélagsins ekki spegill þess. |