Aldalöng hefð er fyrir framleiðslu og neyslu á kimchi á Kóreuskaga, þar sem er til siðs að borða réttinn í öll mál. Hefðin er í raun svo sterk, að hún hefur fengið sérstaka útnefningu frá Mennta-og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, sem menningargersemi. Suður- Kóreubúar flytja réttinn út fyrir tugmilljarða íslenskra króna á hverju ári. Í stuttu máli er kimchi einfaldlega kínakálhaus sem er látinn liggja í saltlegi yfir nótt. Því næst er hann nuddaður með kryddblöndu sem inniheldur oftast chili-duft, engifer, hvítlauk, sykur og fiskisósu. Eftir að kryddblandan er komin undir hvert blað, er kálhausinn lokaður af í tunnu og látinn gerjast. Það er smekksatriði hve lengi gerjunin stendur, allt frá nokkrum dögum til nokkurra mánaða. Ég fékk kimchi fyrst í flugvélinni á leið til Seoul frá Frankfurt. Mér líkaði strax mjög vel við réttinn. Þetta er mismunandi bragðsterkt, en oftar en ekki mjög sterkt og þá vegna rauða piparins. Gerjun grænmetisins myndar bakteríuflóru sem er mjög góð fyrir meltinguna og því er þetta meinhollur réttur. Kimchi er borið fram með öllu mat sem meðlæti. Ég fékk það t.d. í morgunmat heima hjá Ju Young. Fólk býr til sitt eigið kimchi og er þá auðvitað um margar mismunandi uppskriftir og fjölskylduleyndarmál að ræða. Ég er mikið að velta því fyrir mér að prufa sjálfur að búa þetta til. Svona búa Kóreubúarnir þetta til. Sjá myndband.
0 Comments
Ég er ansi mikið sammála þessu þótt stundum sé í textanum "gróft til orða tekið".
http://kjarninn.is/kjaftaedi/2016-07-13-snjollu-bornin/ Ferð okkar hjóna til Kóreu 24. júní - 8. júlí er nú á enda. Mun setja myndir inn á Flickr á næstunni og einhverjar frásagnir birtast svo hér.
|
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |