Ég er búinn að komast að því að í öllum pilluboxum og á öllum pilluspjöldum, sem ég hef notað, er jöfn tala af pillum.
Ég var farinn að halda að þetta væri regla án undantekninga í öllum pillubransanum. En svo er ekki. Sjálf "Pillan" er nefinlega bara með 21 pillu á hverju spjaldi. "Pillan" með sínum ákveðna greini er því sannarlega í stórmerkilegum sérflokki...PILLUODDATÖLUFLOKKNUM !
0 Comments
Mér er umhugað um fullyrðinguna; við sjáum það sem við þurfum. Það sem við sjáum er vegna þess að við þurfum þess - en það sem við sjáum ekki er vegna þess að við þurfum það ekki. Getur það verið ?
Það er allavega alveg klárt að við sjáum ekki öll það sama. Ég geng fram hjá bíl og sé fallegan rauðan sportbíl, félagi minn sér Hondu 2011 árgerðina - 230 hestöfl og annar félagi minn sér gatslitin sumardekk. Ég ek um sveit eina og sé bóndabýli baðað fallegu sólskini, félagi minn sér lélega grassprettu og annar félagi minn sér fornar tóftir og fer með sögu staðarins á stundinni. Ég gef öndunum brauð við Tjörnina og sé ungt par skiptast á innilegu augntilliti en konan mín sér alveg nýtt mynstur í lopapeysum þeirra. Hmm...er þetta ekki bara þannig ? Við sjáum það sem við þurfum að sjá og það sem við þurfum að sjá er byggt á reynslu, viðhorfum og áhugamálum. Enginn sér það sama þótt gónt sé Bíllinn minn er af gamall en nokkuð fullkominn. Hann er með mikinn aukabúnað sem kallar á hærra flækjustig ef eitthvað bilar. Þegar eitthvað bilar í bílnum er hann háður því að tengjast tölvu, svo hægt sé að laga hann. Þar sem minn bíll er af sérstakri ætt, þá þarf hann sérstaka tölvu. Hann vill alls ekki láta gera við sig hér í Búðardal í einhverri almennri bílatölvu. Hann þarf að fara í Wolksvagen vottaða tölvu í Reykjavík.
Þetta er góður bíll en mér finnst erfitt að þurfa að ferðast 400 km fram og til baka til þess eins að hægt sé að skipta um bremsuklossa. Eitt af því sem fer alltaf jafnmikið í taugarnar á mér er hugtakið "þynningarsvæði". Þetta er tiltölulega nýtt hugtak í landsmálaumræðunni en þó orðið nokkurra áratuga gamalt. Þynningarsvæði er skilgreint svæði kringum mengandi starfssemi þar sem mengum má fara yfir heilsufarsleg mörk. Nær eingöngu er að ræða svæði í kringum stóriðju og jarðhitavirkjanir.
Þynningarsvæði eru hugsuð fyrir mengandi og hættuleg efni að "þynnast" á. Til dæmis þegar útblástursefni í lofti eru komin útfyrir svæðið er það ekki lengur yfir hættumörkum. Á mannamáli er þetta einfallt: Samkvæmt lögum fær ákveðin starfssemi leyfi til að menga jarðveg, gróður og vatn á ákveðnum svæðum á Íslandi. Önnur lög um heilbrigði og hollustuhætti banna svo íbúðabyggð inni á þynningarsvæði. Þynningarsvæði eru því ekkert annað en menguð og hættuleg svæði. Svæði sem bannað er að búa á. Svæði sem grasbítar eiga ekki að vera á og svæði sem ekki er hægt að nýta uppskeru. Svo hættum að kalla þetta þynningarsvæði og köllum þetta réttu nafni: Mengað svæði. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |