Ef einhver er að velta því fyrir sér afhverju ekki séu að hlaðast upp fleiri myndir á Flickr frá mér...þá er svarið að ég er að vinna að mikilli endurskipulagningu á allri flokkun þar.
Núnar eru í myndasafninu 1350 myndir og ég reikna með að þeim eigi eftir að fjölga jafnt og þétt næstu árin. Til að halda utan um skipulagið er ég að "tagga" allar myndir. Hef nú taggað um 400 stk.... svo enn er nokkuð í land. Töggun er merking á myndum eftir leitarorðum. Þegar töggun er lokið verður hægt að kalla fram myndir úr fjölmörgum flokkum. T.d. getur fjölskyldan smellt á sitt nafn; t.d. Sigga og þá koma allar myndir í safninu upp sem hún er á. Til nánari útskýringa gef ég hér upp slóðina að flokkunarkerfinu. Þið getið prufað að smella á einhvern flokk til gamans. En ég minni á að þessu verki er ekki lokið. Ég er enn að vinna bakvið tjöldin. Hér er slóðin: http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/tags/
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |