Undanfarnar sex vikur hef ég glímt við það að endurgera gamla tölvu og gera að minni aðaltölvu. Um er að ræða átta ára gamla borðtölvu sem Keli og Stulli áttu og reyndar smíðuðu á sínum tíma. Hún var notuð í leiki alveg út árið 2010 en þá fékk Rikki hana og notaði fram á mitt ár 2012. Alltaf gekk tölvan á sínu Windows XP. Tölvan lifði meðal annars af suðurlandsskjálftan 2008, nema reyndar skjárinn.
Upprunalega hugmyndin hjá mér var að skipta bara um móðurborð, minni og örgjafa. Setja upp Linux Ubuntu og nota tölvuna fyrir myndaumsýslu. Ef þetta gengi vel ætlaði ég að leggja fartölvunni. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 50.000 kr. Í stuttu máli gekk þetta nú ekki eftir. Allur vélbúnaður var orðinn svo lúinn að á endanum stóð ekkert eftir nema skjárinn (sem var frá 2008), tölvukassinn, lykklaborð og hátalarar. Einn harður diskur og geisladrif voru of gömul til að tengjast móðurborðinu, síðan hrundi hinn harði diskurinn og tölvan fór aftur í viðgerð. Þá hrundi rafmagnsafltakinn og tölvan fór í þriðja sinn í viðgerð. Í öll skiptin sem eitthvað var að hélt ég að stýrikerfið Ubuntu væri hrunið, þannig að ég var alveg við það að hætta við þetta og kaupa Windows á tölvuna (Ubuntu er ókeypis). En að lokum kom þetta. Og hér sit ég alveg rosalega ánægður með útkomuna. Öfluga tölvu, stóran skjá, skemmtilegt og mjög hraðvirkt stýrikerfi sem spennandi er að læra á og fullt af nýjum forritum sem eru gerð fyrir linux/ubuntu. Allur hugbúnaður ókeypis. Ég er viss um að þessi skref verð mér þroskandi til lengri tíma litið. PS... reyndar endaði kostnaðurinn við vélbúnaðinn í 97.000 kr. :(
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |