Ég fer reglulega í sund og mér finnst sundið gera mér mjög gott. Vegna þessa hef ég líka gaman af því að prufa nýjar sundlaugar. Um helgin tókst mér að synda á tveimur nýjum laugum á Suðurnesjum.
Á laugardagsmorgun fór ég í sundlaugina í Sandgerði. Hún leit vel út á myndum en stóð ekki alveg undir væntingum. Sturtan var til skiptis volg og köld, það vantaði krossmerkingar á bakka sundlaugarinnar (svo maður syndi ekki á bakkan) og ekki voru heldur neinar brautir til að brjóta niður ölduna. Hinsvegar var gufan frábær og pottar góðir. Á sunnudagsmorgun komst ég svo í laugina í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hún var öll hin snyrtilegasta og ekki hægt að finna þar neina galla. Gott að synda og allar merkingar til staðar, pottur þægilegur og sturtur heitar. Mæli með þeirri laug á góðum sumardegi, því skjólið og umgjörðin um laugina er einstök.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |