Slóvenía kom okkur á óvart á marga vegu. Landið var minna og fámennara en maður hafði áttað sig á og velmegun þar er mun meiri en gengur og gerist í fyrverandi Austur- Evrópuríkjum. Slóvenía er rúmlega 20.000 fkm eða um einn fimmti af Íslandi. Þar búa tvær milljónir manna. Stærsta borgin Lúblíana telur 300.000 íbúa. Verg landsframleiðsla er 28.641 á mann. Til samanburðar er verg landsframleiðsla á mann á Spáni: 30.600 og á Íslandi: 38.000 og í Króatíu 18.000. Skattar eru háir og velferðarkerfið sterkt. Þeir eru sú þjóð í Evrópusambandinu sem hefur hvað minnst af nýbúum og sáum við þeim aldrei bregða fyrir. Allt láglendi og upp í fjöll er skógi vaxið og aðeins Finnland og Svíðþjóð hafa hlutfallslega meiri skóga. Timburvinnsla er stór útfluttningsvegur í Slóveníu. Landið liggur vel innan Evrópu og þar krossast gatnamót suður Balkanskaga, vestur til Ítalíu, norður til Austurríkis og svo austur til Ungverjalands. Þetta nýta Slóvanir sér vel og hafa fjárfest í miklum hraðbrautum og umferðarmannvirkjum. Svo rukka þeir vegatolla grimmt á öllum leiðum. Slóvenar minna meira á norrænar þjóðir í háttum og venjum en nágranna þjóðirnar í suðri og vestri. Þeir eru skipulagðir, hreinlegir, tæknivæddir og elskulegir. Ég kom aldrei inn á skítugt eða illa lyktandi klósett í allri ferðinni. Ég var voðalega feginn að þurfa ekki að verjast ágengum sölumönnum í búðardyrum eða fyrir framan veitingastaði. Og ekki þarf að hafa fyrir því að borga tipp. Þá hafa þeir þann einkennilega sið (en kurteisa) að kveðja mann alltaf við allar kringumstæður. Ef maður spurðist fyrir einhverstaðar var maður kvaddur sérstaklega, ef maður gekk inn í búð og bara svona skoðaði og fór út var maður kvaddur með virktum og já allstaðar varð maður að muna eftir því að kveðja. Landið er mjög fallegt. Frá strönd Adriahafsins upp á háslétturnar með djúpum dölum og svo Alpana í norðri. Af vatni er nóg og rennur það að stórum hluta neðanjarðar í göngum enda finnast í Slóvaníu gríðarlegir hellar. þetta eitt af þeim fáu löndum sem vatnið úr krananum er án klórbragðs. Það smakkast ágætlega.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |