Hér gefur að líta sjávarréttasúpu. Þessi súpa var borin fram fyrir okkur í Bussan syðst í Kóreu, en þar er mikil hefð fyrir sjávarréttum.
Fatið er sett á gashitun á miðju matarborðinu fyrir framan gestina. Sjávarföngin eru öll mjög fersk þegar matseldin hefst, t.d. hreyfir sig sumt á fatinu í upphafi. Stóri humarinn er tekinn aftur og eldaður og klipptur í smærri einingar og svo skilað til okkar aftur á sérdiski. Smokkfiskur og sæbjúga eru klippt í litla bita með skærum en að öðru leiti gerir súpan sig sjálf. Þegar tekur að krauma í fatinu fer súpan að fá bragð sem verður sterkara eftir því sem meira sýður. Við (matargestir) tínum eftir smekk skeljar, grænmeti , rískökur og fleira úr fatinu með prjónum og dýfum í gómsætar sósur sem sjálst í bakgrunni. Að lokum fáum við okkur súpu á skálar og rennum restinni af meðlætinu niður. Kannski staupum við okkur aðeins líka á mildu hrísgrjónavíni. Mjög mjóg góður matur !
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |