Dæmisaga um skóla
Eitt sinn fyrir langa löngu ákváðu nokkur dýr að taka sig saman og leggja sitt af mörkum til þess að mæta áskorun nútímans. Þau voru sammála um að stofnun skóla væri leiðin til þess. Dýrin innleiddu námskrá í skólann sem tilgreindi og lýsti eftirfarandi námsgreinum: Hlaupi, flugi, sundi og klifri. Námsgreinunum var ætlað að auka líkamlega færni þeirra. Til þess að auðvelda umsjón með námskránni og gæta jafnréttissjónarmiða, þurftu öll dýrinn að leggja stund á allar námsgreinarnar og tóku ávalt samræmt próf í greinunum. Öndin var frábær í sundi, meira að segja betri en sjálfur kennarinn, en hún náði naumlega fullnægjandi einkunn í flugi og var afar lélegur hlaupari. Þar sem hún hljóp of hægt var hún sett í sérkennslu í hlaupi. Til þess að komast í sérkennslutímana var hún látin sleppa sundi. Þessu var haldið til streitu þar til fætur hennar voru orðnir svo sárir að hún að hún gat ekki beitt sér að fullu í sundi og varð því aðeins meðalnemandi í sundi í lok annar. En meðaltal var viðunandi í skólanum svo enginn kippti sér upp við það....nema öndin. Kanínan var í byrjun skólagöngunnar best í hlaupum, en fékk fljótlega taugaáfall sökum mikils álags við að bæta sig í sundi. Kanínur og sund eiga illa saman og urðu sundtímar hennar mesta martröð. Íkorninn var frábær í klifri en stöðugar aðfinnslur varðandi flughæfileika urðu til þess að hann misti smám saman sjálfstraustið. Kennarinn vildi nefnilega að hann hæfi sig á loft frá jörðu í stað þess að stökkva af trjákrónunum og niður til jarðar. Hann fékk líka vöðvakrampa af of mikilli áreynslu. Í einkunn fékk hann síðan C í klifri og D í hlaupum. Örninn var vandræðafugl. Reynt var að aga hann en með engum árangri. Í klifurtímum var hann fyrstur allra að komast efst upp í tréð, en þrjóskaðist við að nota sína eigin aðferð til að komast þangað. Hann neitaði algjörlega að nota þá aðferð sem ætlast var til af skólanum og lenti útí kuldanum. Í lok skólaársins var það svo kamelljón sem synti allvel og gat líka hlaupið, klifrað og flogið dálítið sem fékk hæstu meðaleinkunn og dúxaði þar með í skólanum. Tekið af vef Norðlingaskóla í Reykjavík.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |