Já maður hefði kannski búist við heldur meiri gleði við páskamáltíðina heldur en hjá þessari fjölskyldu þennan daginn. Barasta enginn glaður. Svona annarshugar fólk sem smjattar á páskaeggjum úr súkkulaði. Birna Björt meira segja er með fílusvip.
Ef diskarnir eru taldir eru þeir 14 og svo má grilla í skeið við borðendann, þannig að 15 manns sitja til borðs þennan daginn á Efri - Brunná. Sennilega sig ég við hliðina á Helgu og Sigga við hliðina á Önnu. Mamma á endanum og hún tekur örugglega þessa mynd enda úr hennar myndasafni. Eins og oft áður er sennilega þrí eða fjórréttað. Byrjað á páskaeggi, þá kemur sennilega heit eggjamjólk með rúsínum (ef marka má súputarínu), þá lambasteik og hugsanlega er kaka eða ís í eftirrétt. Fólk verður nú oft glaðara af minna tilefni. Það er reyndar ekkert gos... kannski er það málið. Við fyrstu sýn tekur maður ekki eftir að það vantar einn á myndina. Hver er í felum á milli ömmu Laugu (sem sést ekki vel í) og Stefáns ? Við sjáum aðeins í beran handlegg, hvíta blússu og svartar buxur. Þetta er ekki amma, því ég er búinn að bera saman í nærmynd hvítu peysuna hennar og þessa blússu. Tómur diskur fyrir framan.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |