Sú einkennilega hefð hefur verið á fréttatímum í útvarpi og sjónvarpi að vera með upprifjun. Þegar horft er á fréttatíma sjónvarps er byrjað á því að fara hratt yfir það helsta sem í fréttum er. Þetta er eflaust gert til þess að vekja eftirtekt þess sem á horfir þannig að hann viti hvað í vændum er og sitji sem fastast við skjáinn. Allt í lagi með það.
Í lok fréttatíma er svo sama kynningin endurtekin til að skýra hvað hafi verið í fréttum. Þetta óþolandi innskot í lok fréttatima hef ég aldrei skilið. Ef ég hef horft á allar fréttirnar og fengið kynningu á þeim einu sinni... afhverju þá vera að kynna þetta aftur ? Þetta þarf maður að sitja af sér. Þetta er bara gert til að lengja fréttatíma. Í styttri fréttatímum t.d. í útvarpi er þetta ekki gert. Þar lýkur bara fréttafluttningi þegar síðasta fréttin er búin. Þetta er heldur ekki gert í lengri fréttaskýringarþætti eins og Kastljósi.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |