Ég hef notað daginn í dag í að læra að "tagga" myndir. Myndasafnið mitt í tölvunni telur orðið nokkur þúsund myndir og sífellt erfiðara verður að halda utan um það. Ég hef líka verið latur að útrýma myndum strax og þær eru komnar inn á tölvuna. Ætla alltaf að gera það seinna.
En í dag hófst ég handa við að skipuleggja "tag" lista. Og ég komst líka að því að ég hef skipulagt möppukerfið undir myndirnar kolvitlaust. Þegar maður skipuleggur möppur undir myndir þarf að hafa eftirarandi í huga: a) Ein mappa undir allar undirmöppur með myndum. b) Undirmöppur fá nöfn á viðburðum eða þemum; fjölskyldan, vinir, landslag og framvegis...ekki láta möppurnar heita eftir ártölum eins og ég geri... c) Undir hverri þemamöppu koma svo ártalamöppur. Aðrar reglur sem gott er að hafa í huga eru t.d. : Að ef við erum í vafa hvort við ættum að henda einhverri mynd...þá ættu við að henda henni. Að gefa öllum myndum strax nafn. Að skirfa við hverja mynd eitthvað um hana. En þrátt fyrir góðan dag í þessu er ég alls ekki viss um að mér takist að ná utan um þetta. Hreint út sagt alveg ótrúlega mikil vinna.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |