Tilfellum, sem upp koma, þar sem fólk flýr hús sín vegna myglusvepps fer hratt fjölgandi. Sumir segja að þetta tengist því að hús séu ekki eins vel smíðuð og áður. Kannski. Allavega snýst þetta mikið um raka í húsum; leka og sagga.
Ég heyri stundum í fullorðnu fólki (jú sem er eldra en ég) sem lýsir híbýlum sínum í æsku, sem köldum og/eða rökum. Þannig efast ég stórlega að hús byggð hér á árum áður hafi verið eitthvað betri. Fólk hefur alveg áreiðanlega búið við sömu sveppaskilyrðin löngu fyrir okkar daga. Og fólk fann líka að húsin voru ekki góð; voru heilsuspillandi. En það hafði oft ekki val og kannski ekki næga þekkingu heldur til að bregðast við. Sennilegt er að í gegnum tíðina hafi þúsundir íslendinga alist upp við þessi skilyrði. Kannski með lús í hári sínu og öllum rekkjuvoðum. Í dag förum við flest alveg af límingunum ef við teljum að annaðhvort herji á okkur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |