Það eru mikil loftgæði á Íslandi. Íslendingar eru aldir upp við ferskt og hreint loft, sem er ekki sjálfgefið hjá milljónum manna í veröldinni. Því bregður manni nokkuð í brún að búa við mengun sem kemur úr eldgosinu í Holuhrauni. Kannski sérstaklega vegna þess að þetta mengunartímabil hefur varað vikum saman.
Það er alveg hreint magnað í sjálfu sér hvað ein svona hola getur spúið miklu eitri og gasi upp í andrúmsloftið. Mengunin er svo mikil að mörg þúsund ferkílómetra eru mengaðir. Stundum nær mengunin yfir meira en helming landsins. Og ef það hægviðri og kalt þá fer mengunin langt upp fyrir hættumörk. Ég bý langt frá gosstöðvunum, en engu að síður kemur hér iðulega bláleitt mengunarský í austanáttum. Og einu sinni hafa Almannavarnir Íslands sent SMS á íbúa í Dölum og beðið þá að halda sig innan dyra og loka gluggum. Svo mengað var andrúmsloftið. Nú í dag er hvöss NNA átt. Skítköld með slyddu. Ekkert útiveður og eiginlega varla ferðaveður á heiðum. En loftið er hreint. í dag opnar maður glugga og blessar norðanáttina.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |