Ein af þeim nýjungum í atvinnumálum sem virðast ná að dafna við Breiðafjörðinn er kræklingarækt. Ræktin hefur nú þegar fest rætur og dafnað á nokkrum stöðum. Gert er út á krækling úr eldi frá Króksfjarðarnesi, frá Búðardal og frá Stykkishólmi. Víða um land er ræktun á kræklingi orðin talsvert umfangsmikil og virðist sem landinn hafi náð sífellt betri tökum á ræktuninni. Þannig bárust nú nýlega fréttir af nýrri vinnslu á Drangsnesi þar sem 20 manns vinna. Sjá frétt hér. Þessi árangur er sannarlega öðrum er reyna fyrir sér í ræktuninni hvatning. Í næsta nágrenni Dala býr Bergsveinn Reynison á Gróustöðum í Gilsfirði. Hann hefur um árabil ræktað Bláskel undir nafninu Nesskel. Bergsveinn hefur gerst sífellt umfangsmeiri og fer nú fyrir samtökum þeirra sem rækta skelina. Samtökin heita Skelrækt (heimasíða hér). Nesskel hefur frá 2009 haft framleiðsluleyfi fyrir 1000 tonnum af bláskel á ári og leyfi til að rækta hana á fjórum stöðum í Hvammsfirði og þremur stöðum í Króksfirði. Ræktun á kræklingi fer í meginatriðum þannig fram að festir eru spottar í sjó, sem viltar kræklingalifrur festa sig á og vaxa þar. Á um það bil tveimur árum nær kræklingurinn markaðsstærð. Þá eru spottarnir sóttir, kræklingarnir teknir af þeim og spottunum komið fyrir aftur. Enginn fóður- eða lyfjagjöf fylgir ræktuninni og telst hún því mjög vistvæn. Eitt af því sem setur vinnslu á kræklingi nokkrar skorður eru eitraðir þörungar sem er aðalfæða kræklingsins í nokkurn tíma á hverju ári. Meðan kræklingurinn fær næringu sína úr eitruðu þörungunum er hann ekki hæfur til manneldis en um leið og þörungurinn hverfur á braut hverfur eitrunin úr kræklingnum. Oftast þegar maður lítur út á hinn breiða og fallega Hvammsfjörð sér maður aldrei bát. Á þessu eru eiginlega bara tvær undantekningar. Annarsvegar þegar einhver fer út á fjörðinn í skemmtisiglingu og hinsvegar þegar eigendur skelræktarinnar skoða eða sækja skel. Ég vona sannarlega að það síðarnefnda verði daglegur viðburður hér í Búðardal.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |