"Hvítlaukur (Allium sativum) er bakteríudrepandi og einstaklega góður gegn hverskyns sýkingum, enda afar löng hefð fyrir þeirri notkun. Áður fyrr var hann t.d. notaður gegn berklum og til að sótthreinsa sár og í báðum heimstyrjöldunum sem vörn gegn blóðeitrun. Hann styrkir ónæmiskerfið og er góður gegn kvefi, flensum og eyrnabólgum. Eins er hann talinn vinna á snýkjudýrum í meltingavegi og örva blóðrásina. Rannsóknir á hvítlauk hafa sýnt fram á góð áhrif hans á hjartað og hann er talinn veita vörn gegn æðakölkun og hjartasjúkdómum, lækka blóðþrýsting og blóðfitu, þynna blóð og draga úr líkum á hjartaáfalli. Rannsóknir hafa einnig bent til þess að hvítlaukur lækki blóðsykur og hamli vexti krabbameinsfrumna."
...segir Anna Rósa grasalæknir og ég trúin henni.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |