Samtök atvinnulífsins(SA) hafa undanfarnar tvær vikur sætt gagnrýni fyrir auglýsingu sem túlka má þannig að óhóflegar launakröfur almennings sé orsök verðbólgu. Launafólki beri ábyrgð á verðbólgunni. Vitaskuld hefur þessi auglýsing farið fyrir brjóstið á mörgum. En SA eru rík samtök og geta dælt þessari auglýsingu í fjölmiðal og ljósvakamiðla af miklum þunga. Láta ekki reiði eins eða fleiri trufla sig í því. Nú hefur verkalýðsforinginn á Akranesi; Vilhjálmur Birgisson sett fram myndband á netinu (youtube og google+). Myndbandið hefur fengið fínar undirtektir og fer eins og eldur um sinu í netheimum. Hinsvegar eru SA menn ekki hrifnir og telja sig hafa verið niðurlægða (sjá, t.d. vef samtakana) Ofangreind barátta um að koma upplýsingum til fólks er frábært dæmi um mátt Netsins og hvernig það hentar til upplýsingastreymis. Auglýsing SA og birting hennar vikum saman kostar gríðarlega fjármuni. Myndband verkalýðsforingjans kostar ekki krónu. Hundruðum og þúsundum saman tekur fólk sig til við að deila myndbandinu um alla netheima. Gríðarlegur fjöldi horfir á það. SA getur ekkert gert til að stjórna eða stöðva myndbandið. Ekki má gleyma að Vilhjálmur virkjar hér reiði fólks. Það er hreint ekki skrýtið að fjöldi fólks um allan heim standi dyggan vörð um sem frjálsustu netnotkun. Flokkur Pírata er dæmi um slíkt. Hér er svo hið bráðskemmtilega og móðgandi myndband verkalýðsforingjans:
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |