Góð spurning. Þetta eru nú bara litlar 900 milljónir svo eitthvað þarf að hugsa sig um. Ég til dæmis veit eiginlega ekkert hvað alvöru hlutir kosta. Það er helst að ég sé eitthvað inni í matvöruverði, verði á raksápu og klósettpappír...sem trúlega verður alveg óþörf vitneskja í framtíðinni. Sennilega þarf verðvitund mín að "vaxa" út fyrir þúsundkalla og snúast um milljónir.
Hvað ætli alvöru sportbátur til að sigla um Hvammsfjörðinn í kvöldlogninu kosti ? Ekki minnstu hugmynd hef ég um það né hvort ég þurfi einhverja sértæka menntun til að fá að stýra slíkum grip. Eða sumarhús í sólbjörtu landi eins og Frakklandi...hvað skyldi slíkt kosta ? Alvöru hlutir sko. Hús á tveimur hæðum á Seltjarnesinu með innisundlaug og vínkjallara...hvað skyldi það kosta ? Eða að veiða í viku í Hofsá í Vopnafirði ? Hva..afhverju veit maður ekki svona hluti ? Hvar er verðskynið ? Ég veit ekkert hvernig best er að eyða öllum þessum peningi frá frúnni í Hamborg. Furðulegt fyrir það fyrsta að hún skyldi vilja gefa mér þessar milljónir. Já eg gefst upp. Úpps...(sagði bannorðið).
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |