Mér er umhugað um fullyrðinguna; við sjáum það sem við þurfum. Það sem við sjáum er vegna þess að við þurfum þess - en það sem við sjáum ekki er vegna þess að við þurfum það ekki. Getur það verið ?
Það er allavega alveg klárt að við sjáum ekki öll það sama. Ég geng fram hjá bíl og sé fallegan rauðan sportbíl, félagi minn sér Hondu 2011 árgerðina - 230 hestöfl og annar félagi minn sér gatslitin sumardekk. Ég ek um sveit eina og sé bóndabýli baðað fallegu sólskini, félagi minn sér lélega grassprettu og annar félagi minn sér fornar tóftir og fer með sögu staðarins á stundinni. Ég gef öndunum brauð við Tjörnina og sé ungt par skiptast á innilegu augntilliti en konan mín sér alveg nýtt mynstur í lopapeysum þeirra. Hmm...er þetta ekki bara þannig ? Við sjáum það sem við þurfum að sjá og það sem við þurfum að sjá er byggt á reynslu, viðhorfum og áhugamálum. Enginn sér það sama þótt gónt sé
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |