Ég hef ekkert mátt vera að því að blogga neitt undanfarna daga. Ég er búinn að vera í gönguferðum um þorp og bæi í Finnmörku í norður Noregi. Nýja "street view" kerfið hjá Google Earth/maps er alveg frábært. maps.google.com Ég get spásserað um ótrúlegustu götur og bæi, horft í kringum mig og skoðað umhverfið líkt og væri ég á ferðalagi. Reyndar ræð ég ekki hvort það er vetur eða sumar, já eða sólskin. En ég sé landslagið, gróðurinn, byggingarnar, útsýnið, verslanirnar, götumyndirnar og fl. og fl.
Þessar gönguferðir eru í raun aðeins tæknilega þróuð útgáfa af ferðlögum á landabréfum. En móðir mín kenndi mér þá iðju í æsku að ferðast um lönd og álfur eftir vegum, lestarteinum eða skipaskurðum á korti einu saman. Hafði maður þá viðkomu í hinum ýmsu sögufrægu borgum, fór yfir sund með ferjum, gegnum fjallaskörð og brá sér jafnvel á tinda hæstu fjalla. Af þessu hafði ég mikla unun sem ég nú upplifi á nýjan og sterkan hátt 40 árum síðar.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |