Ég hef verið að horfa á kosningaþættina á RÚV. Ég verð að segja að ég er mjög ánægður með öll nýju framboðin. Það var full ástæða til að fá nýtt líf í kosningabaráttuna. Ef fjóflokkurinn hefði verið einn í sjónvarpssal hefði maður þurft að horfa á sama þreytta liðið rífast. En nú skyndilega er fult af nýjum viðhorfum og lausnum bæði til hægri og vinstri.
Um 27% kjósenda ætla að kjósa ný framboð ef marka má skoðanakannanir. Það er auðvitað spark beint í andlitið á fjórflokknum. 5% reglan kemur hinsvegar í veg fyrir að þúsundir atkvæða þeim til handa breytist í þingmenn. Reglan er mikilvæg fyrir fjórflokkinn - enda samin af honum til að tryggja völd. En ég tek ofan fyrir þeim öllum sem ætla að kjósa annað en fjórflokkinn. Fjórflokkurinn á sök á hruni, ónýtum gjaldmiðli, okurvöxtum og glötuðum tækifærum. Ég skil þá vel sem hreinlega geta það ekki lengur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |