Nú í kvöld lauk þáttaröð Andra þar sem hann flandrar um slóðir vestur Íslendinga. Í kvöld var það heimsókn á sjálfan Íslendingadaginn í Gimli. Þetta var annar þátturinn sem fjallaði um Gimli og það verður að segjast að virkilega væri nú gaman að skreppa þangað, þrátt fyrir hitann og flugurnar. Það sem manni kemur svolítið á óvart er hversu mikið strandlíf og fallegar strendur eru við Winipegvatnið.
Víða á Internetinu er margt að finna sem tengist Gimli; Myndir, myndbandsbútar, textar og fl. Lang flest er þetta á ensku. Eitt af því sem ég skoðaði er myndupptaka af þremur mönnum frá Gimli við fiskveiðar í gegnum ís. Mér fannst þetta nokkuð merkilegt á að horfa; fatnaður, farartæki, búnaður, vinnubrögð og fl. Skemmtilegt hversu vélvædd þessi veiði er en samt frumstæð. Aðdáunarvert hvernig veiðimennirnir fylgja hlaupakettinum undir ísnum með eyrum og augum. Þetta er eiginlega vélvædd útgerð án báta. Þeir leggja alls 6 net, sem þeir draga til skiptis og leggja aftur og aftur. Allt við þetta er eitthvað svo hugvitsamlegt. Læt fylgja með slóðirnar af myndbandsbrotunum en þau eru fjögur talsins; Brot 1 - Brot 2 - Brot 3 - Brot 4
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |