"Húðlæknar áætla að allt að 90% þeirra breytinga í húðinni sem við álítum tilkomnar vegna öldrunar séu í raun vegna skemmda af völdum sólarljóss (ljósskemmda = e. photodamage). Húð sem hefur elst án þess að verða fyrir áhrifum sólarljóss virðist þynnri en yngri húð en er án djúpra hrukka og svokallaðra ellibletta (e. age spots) og annarra svæða þar sem litarefnadreifing er ójöfn. Húð sem hefur orðið fyrir áralöngum ljósskemmdum er með fleiri og dýpri hrukkur, auk þess sem víða eru litaskellur vegna ójafnrar litadreifingar. Í húð sem orðið hefur fyrir miklum ljósskemmdum hafa teygjanlegu prótíntrefjarnar í leðurhúðinni, elastíntrefjar, þykknað og flækst saman og marktækt minna er af kollagen prótínþráðum en í húð sem hefur elst án ljósskemmda" http://www.visindavefur.is/svar.php?id=3303
Áralöng ljósnotkun mín í sól og sumaryl er mér hulin ráðgáta hér á þessum hjara veraldar. En elliblettirnir... þeir láta samt á sér kræla.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |