Ég heyrði í morgun auglýsingu þar sem verið var að auglýsa Macintosh. Það sem sló mig var að notað var orðið "Macintosh" en ekki "Quality Street" sem sælgætið heitir í dag. "Voðalega eru nú Íslendingar nú fastheldnir" hugsaði ég og velti fyrir mér afhverju þjóðin gæti ekki lært að kalla þetta uppáhalds jólanammi sitt " Quality Street". En þegar ég fór að skoða þetta betur ... þá erum við ekki ein. Norðmenn kalla þetta nammi sitt gjarnan "Shetlandsgodt" vegna þess að sjómenn komu oft með það frá Hjaltlandseyjum þegar þeir sneru heim. Og Írarnir kalla þetta nammi ekki annað en "Macintosh". Eins og við. Það var árið 1988 sem Nestle keypti fyrirtækið Rowntree Mackintosh í Englandi og breytti framleiðslunni og nafninu. Þannig að það eru komin 25 ár frá breytingunni. Ég efast um að það verði kallað annað hér á landi úr þessu.
1 Comment
Sigga
25/12/2013 04:08:46 pm
Hér biða allir bláu og grænu molarnir eftir fjölskyldunni þinni.... við tökum bleika í skiptum :-)
Reply
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |