Ólympíuleikarnir eru byrjaðir enn einu sinni. Þeir lífga heldur betur upp á sjónvarpsefnið. Maður er minntur á það á fjögra ára fresti að það eru til fleiri íþróttir en fótbolti, handbolti og frjálsar.
Merkilegt að sumar íþróttir sér maður aldrei í sjónvarpi nema þegar þær eru sýndar í tengslum við Ólympíuleikana. Dæmi um slíkar íþróttir eru t.d. ólympískar lyftingar, sundknattleikur, dýfingar, skotfimi, róður og fl. Það er líka merkilegt að maður þarf ekkert að hafa fylgst með í íþróttagreinunum yfir höfuð til að geta þótt gaman af útsendingum frá leikunum. Það er verður leiðinlegast að horfa á hversdagslegar íþróttir, eins og fótbolta, körfubolta og jafnvel handbolta. En svona er þetta. Frábær íþróttaveisla og eins og í öllum góðum veislum er skemmtilegast að smakka framandi rétti. Og borða yfir sig.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |