Stebbi frændi frá Svíþjóð var á landinu um daginn og kom m.a. vestur í Dali. Ég hitti hann stutta stund síðasta daginn hér fyrir vestan og tók nokkrar myndir af þeim bræðrum. Hér er Stebbi að benda pabba á eitthvað merkilegt í gömlu sveitinni þeirra
0 Comments
Nú hef ég lokið við að skanna, laga og færa inn á Flickr myndasíðuna mína 40 myndir frá árunum 1991 - 1996. Myndirnar eru allar úr myndalbmúi Kela þannig að eðlilega eru þær nær allar af honum. Lítið endilega á myndirnar - smellið hér Með þessari uppfærslu braut ég 1000 mynda múrinn og á núna rúmlega eittþúsund myndir á Flickr vefnum. Bræðurnir Stulli og Keli voru saman í þessu sigurliði KS (Knattspyrnufélag Siglufjarðar). Liðið náði fyrsta sæti í sínum flokki og fékk bikar. Þetta mun hafa verið á fótboltamóti á Sauðarkróki, sennilega árið 1998. Sigurinn var óvæntur - enginn hafði búist við neinu af liðinu, sem tjaldaði ekki sínu bestu mönnum. Nú er margt breytt, t.d. er KS ekki lengur til. Keli og Olga Þórunn Þessi mynd er án efa ein af "stóru" myndunum í albúmum fjölskyldunnar. Myndin er tekin í dyragættinni á Hellisbrautinni á Reykhólum 1993. Keli og Olga Þórunn eru hér rúmlega tveggja ára gömul. Þetta sumar voru þau bestu vinir í heiminum. Um leið og þau vöknuðu á morgnana í sitthvoru húsinu sem reyndar áttu lóðir saman, byrjuðu þau að tala um hvort annað. Svo léku þau sér saman allan liðlangan daginn. Eins brosandi og sæl og hægt var að vera með lífið og tilveruna. Það þurfti að beita fortölum til að fá þau inn að hátta á kvöldin. Og svona leið sumarið - en það var stutt. Leiðir skildu. Í ágúst flutti Keli frá Reykhólum í Dalina. Og hér er einstök mynd af þeim "brosandi og sælum". Nákvæmlega svona voru þau upp á hvern einasta dag. Myndir sem teknar voru á páskum eru loksins komnar í myndasafnið á Flickr. Smellið hér. Náði nokkrum góðum myndum, t.d. þessari hér til hliðar af Önnu. Myndin er frá skírnardegi Kela í nóvember 1991. Það fer greinilega vel á með þeim Kela og Laugu langömmu. Ég man það að amma raulaði einhverja barnaþulu allan tímann sem hún sat með hann. Keli var skírður í Reykhólakirkju í höfuðið á afa sínum; Þorkell Hólm, en nokkrum vikum seinna kom höfnun frá Hagstofunni á nafnið Hólm. Séra Bragi, sóknarprestur á Reykhólum vildi hinsvegar ekki afmá nafnið úr kirkjubókum og sagði að frammi fyrir Guði hafi hann fengið nafnið Þorkell Hólm. Þremur árum síðar, þegar við vorum flutt frá Reykhólum hafið séra Bragi samband við okkur og sagði að nú væri nafnið Hólm leyft....en við þyrftu að borga fyrir að fá það. Við greiddum þá 1994 kr. 5000 kr fyrir nafnið Hólm. Já svona leit fjölskyldan út einu sinni... sennilega fyrir um 18 árum síðan eða svo. Myndin er tekin á Dvalarheimilinu Silfurtúni, en þar var komið reglulega í heimsókn meðan amma Lauga bjó þar. Hinsvegar get ég alls ekki munað hversvegna myndin var tekin þar eða af hverjum. En nokkuð víst er að þetta var fyrirfram ákveðin myndataka. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|