Myndin er frá skírnardegi Kela í nóvember 1991. Það fer greinilega vel á með þeim Kela og Laugu langömmu. Ég man það að amma raulaði einhverja barnaþulu allan tímann sem hún sat með hann. Keli var skírður í Reykhólakirkju í höfuðið á afa sínum; Þorkell Hólm, en nokkrum vikum seinna kom höfnun frá Hagstofunni á nafnið Hólm. Séra Bragi, sóknarprestur á Reykhólum vildi hinsvegar ekki afmá nafnið úr kirkjubókum og sagði að frammi fyrir Guði hafi hann fengið nafnið Þorkell Hólm. Þremur árum síðar, þegar við vorum flutt frá Reykhólum hafið séra Bragi samband við okkur og sagði að nú væri nafnið Hólm leyft....en við þyrftu að borga fyrir að fá það. Við greiddum þá 1994 kr. 5000 kr fyrir nafnið Hólm.
1 Comment
Já svona leit fjölskyldan út einu sinni... sennilega fyrir um 18 árum síðan eða svo. Myndin er tekin á Dvalarheimilinu Silfurtúni, en þar var komið reglulega í heimsókn meðan amma Lauga bjó þar. Hinsvegar get ég alls ekki munað hversvegna myndin var tekin þar eða af hverjum. En nokkuð víst er að þetta var fyrirfram ákveðin myndataka. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|