Jæja þá eru nokkrar mjög gamlar myndir úr myndaalbúmi ömmu Laugu komnar inn á Flickr með myndatexta og pælingum frá mér. Það verður og að segjast að margar myndir í albúmi hennar kann ég enginn deili á og hef ég því ekki skannað þær.
Slóðin hér: www.flickr.com/photos/guggaogloi
0 Comments
Kolbrún, Stefán og Sturlaugur stendur á myndinni. Ekki kemur fram hvar þessi mynd er tekin né veit ég deili á Kolbrúnu. Myndin gæti verið úr Tjaldanesi og t.d. frá 1943. Eitthvað má kannski ráða í húsakostinn á myndinni. Bræðurnir eru, eins og oft fyrr á myndum, líkt klæddir. Báðir í eins peysum og með einhverskonar hjálma. Öll horfa börnin hálf tortryggilega í átt að myndavélinni. Held að þetta sé eina myndin af mér á þessum aldri með ömmu Laugu. Myndin er furðu skýr og góð og lítið þurfti að laga hana. Amma hefur brugðið sér í lopapeysuna utanyfir svuntuna áður en hún brá sér út. Ég set olnbogan í ömmu um leið og sný mér að myndatökumanninum,sem ég held að hafi verið mamma. Mér þykir mjög vænt um þessa mynd. Þessi mynd er úr albúmi sem Amma Lauga átti. Pabbi hefur skirfað við myndina: Jeppi á hlandforinni á Efri-Brunná. Ekki nákvæmlega vitað hvenær myndin var tekin, en trúlega hægt að finna það út með einhverjum skekkjumörkum útfrá því hvenær hundurinn lifði og út frá tröppunni. Það margt athyglisvert við myndina. Í fyrsta lagi er myndin mjög óskýr, jafnvel þótt ég hafi lagað hana talsvert í myndvinnsluforiti og því spurning hversvegna hún var yfirhöfuð sett í albúmið. Var þetta merkilegur hundur ? Í öðru lagi sést í afar lélegan og ónýtan pall og tröppur. Svo lélegur er pallurinn að hann snarhallar og einn fótur sést fara í gegnum hann. Í þriðja lagi hefur sá sem tók myndina ákveðið að taka frekar mynd af hundinum, heldur en af þremur manneskjum sem standa á pallinum. Og aftur...er þetta merkilegur hundur ? Í fjórða lagi getur nú verið skemmtilegt fyrir þá sem voru á pallinum að þekkja sína fætur. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|