Nú hef ég sett inn á Flicr myndasvæðið mitt rúmlega 20 myndir. Þær eru frá því miðjum ágúst og fram yfir jól. Ég hef ekki tekið myndavélina með mér í neina göngu í sumar. Myndavélin er oft í bílnum á ferðum en ekkert notuð. (Er ég að þorna upp ?) Ég á nokkrar myndir á símanum góða, frá einni göngu og fleiri uppákomum, sem ég þarf að koma inn. Því verður að segjast að duglegur hef ég ekki verið í myndatökunni hvað þetta varðar. Hinsvegar tek ég reglulega myndir af fjölskyldunni og fæ líka reglulega lánaðar myndir frá Birnu minni. Hún tekur góðar myndir. Kannski næsta ár verði meira ljósmynda ár ! Hér er slóðin á myndirnar:
0 Comments
Á Flickr var ég búinn að birta þessa mynd, en kunni ekki mikil né góð skil á öllum á myndinni. Stebbi föðurbróðir sendi mér eftirfarandi línur til útskýringar: Lengst til vinstri er Kári. fyrir framan hann er kona hans Margrét systir pabba og barn þeirra. Magga og Kári höfðu með sér hjón sem ég kann ekki nöfnin á trúlega mágur Kára. Það mágurinn sem tekur myndina. Ragnheiður Konráðsdóttir er í fremri röð og Erlingur Gísli Gíslason stendur þar á sínum 13 ára löppum. Hann varð seinna leikari. Hundurinn heitir Hitler og var nokkrum árum eldri en ég. Stebbi Linnet gaf honum nafnið. Marsibil á Sunnuhvoli skammaði pabba sagði að Hitler hefði bitið enhvern í fjölskildu hennar. Hitler átti það til að bíta fólk sem honum líkaði ekki við en ekki hættulega. Pabbi gerði vísu um þetta: Að hægt sé að villa hundi sýn hef ég litla von um. Þó Hitler glefsi í svona svín síst er galli á honum. Myndin er tekin 1946; fyrsta sumarið á Brunná. Takk fyrir þetta Stebbi :) |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|