Á Flickr var ég búinn að birta þessa mynd, en kunni ekki mikil né góð skil á öllum á myndinni. Stebbi föðurbróðir sendi mér eftirfarandi línur til útskýringar: Lengst til vinstri er Kári. fyrir framan hann er kona hans Margrét systir pabba og barn þeirra. Magga og Kári höfðu með sér hjón sem ég kann ekki nöfnin á trúlega mágur Kára. Það mágurinn sem tekur myndina. Ragnheiður Konráðsdóttir er í fremri röð og Erlingur Gísli Gíslason stendur þar á sínum 13 ára löppum. Hann varð seinna leikari. Hundurinn heitir Hitler og var nokkrum árum eldri en ég. Stebbi Linnet gaf honum nafnið. Marsibil á Sunnuhvoli skammaði pabba sagði að Hitler hefði bitið enhvern í fjölskildu hennar. Hitler átti það til að bíta fólk sem honum líkaði ekki við en ekki hættulega. Pabbi gerði vísu um þetta: Að hægt sé að villa hundi sýn hef ég litla von um. Þó Hitler glefsi í svona svín síst er galli á honum. Myndin er tekin 1946; fyrsta sumarið á Brunná. Takk fyrir þetta Stebbi :)
0 Comments
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|