Fyrsta heimili Guggu og Lóa var kjallaraíbúð að Hvolsvegi 21 á Hvolsvelli. Húsið allt var eign Kaupfélags Rangáreyinga. Fyrsta símanúmerið var 487 8394. Fyrir framan húsið er bíll númer tvö; Lada Lux með númerið L2317. Bíllinn var keyptur úr Þykkvabænum á krónur 120.000, sem voru nokkurnveginn þreföld mánaðarlaun. Íbúðin var þriggjaherbergja en með þeim annmarka að klósettið var fram á gangi. Eitt sameiginlegt þvottahús var fyrir allt húsið. Nokkuð er enn til af fyrstu búslóðinni; t.d. pottar. Þarna bjuggu þau alsæl frá nóvember 1984 til ágúst 1986 en þá fluttu þau til Reykjavíkur.
0 Comments
|
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|