Þessi mynd er úr albúmi sem Amma Lauga átti. Pabbi hefur skirfað við myndina: Jeppi á hlandforinni á Efri-Brunná. Ekki nákvæmlega vitað hvenær myndin var tekin, en trúlega hægt að finna það út með einhverjum skekkjumörkum útfrá því hvenær hundurinn lifði og út frá tröppunni. Það margt athyglisvert við myndina. Í fyrsta lagi er myndin mjög óskýr, jafnvel þótt ég hafi lagað hana talsvert í myndvinnsluforiti og því spurning hversvegna hún var yfirhöfuð sett í albúmið. Var þetta merkilegur hundur ? Í öðru lagi sést í afar lélegan og ónýtan pall og tröppur. Svo lélegur er pallurinn að hann snarhallar og einn fótur sést fara í gegnum hann. Í þriðja lagi hefur sá sem tók myndina ákveðið að taka frekar mynd af hundinum, heldur en af þremur manneskjum sem standa á pallinum. Og aftur...er þetta merkilegur hundur ? Í fjórða lagi getur nú verið skemmtilegt fyrir þá sem voru á pallinum að þekkja sína fætur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|