Myndin er frá skírnardegi Kela í nóvember 1991. Það fer greinilega vel á með þeim Kela og Laugu langömmu. Ég man það að amma raulaði einhverja barnaþulu allan tímann sem hún sat með hann. Keli var skírður í Reykhólakirkju í höfuðið á afa sínum; Þorkell Hólm, en nokkrum vikum seinna kom höfnun frá Hagstofunni á nafnið Hólm. Séra Bragi, sóknarprestur á Reykhólum vildi hinsvegar ekki afmá nafnið úr kirkjubókum og sagði að frammi fyrir Guði hafi hann fengið nafnið Þorkell Hólm. Þremur árum síðar, þegar við vorum flutt frá Reykhólum hafið séra Bragi samband við okkur og sagði að nú væri nafnið Hólm leyft....en við þyrftu að borga fyrir að fá það. Við greiddum þá 1994 kr. 5000 kr fyrir nafnið Hólm.
1 Comment
9/8/2022 06:28:58 pm
İçerik çok güzel. https://www.alanyagroup.com/haberler/belek-transfer-7-24/
Reply
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|