Keli og Olga Þórunn Þessi mynd er án efa ein af "stóru" myndunum í albúmum fjölskyldunnar. Myndin er tekin í dyragættinni á Hellisbrautinni á Reykhólum 1993. Keli og Olga Þórunn eru hér rúmlega tveggja ára gömul. Þetta sumar voru þau bestu vinir í heiminum. Um leið og þau vöknuðu á morgnana í sitthvoru húsinu sem reyndar áttu lóðir saman, byrjuðu þau að tala um hvort annað. Svo léku þau sér saman allan liðlangan daginn. Eins brosandi og sæl og hægt var að vera með lífið og tilveruna. Það þurfti að beita fortölum til að fá þau inn að hátta á kvöldin. Og svona leið sumarið - en það var stutt. Leiðir skildu. Í ágúst flutti Keli frá Reykhólum í Dalina. Og hér er einstök mynd af þeim "brosandi og sælum". Nákvæmlega svona voru þau upp á hvern einasta dag.
2 Comments
Birna Björt
20/5/2012 04:08:37 pm
Þetta eru nú meiri krúttin ! :) æðisleg mynd
Reply
Birna Kristín
23/5/2012 04:40:42 pm
Þau eru yndisleg
Reply
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|