Birkir "skríkir" í sturtu með pabba sínum Nú eru komnar nokkrar góðar myndir af Birki inn á hans Flickr síðu. Myndirnar eru allar teknar af Birnu móður hans, sem er vaxandi ljósmyndari. Ég valdi nokkrar góðar úr miklu úrvali og vann þær lítilega. Lítið endilega í heimsókn á myndasíðuna hans Birkis. Slóðin hér. http://www.flickr.com/photos/birkirrafn/
0 Comments
Jæja þá eru nokkrar mjög gamlar myndir úr myndaalbúmi ömmu Laugu komnar inn á Flickr með myndatexta og pælingum frá mér. Það verður og að segjast að margar myndir í albúmi hennar kann ég enginn deili á og hef ég því ekki skannað þær.
Slóðin hér: www.flickr.com/photos/guggaogloi Kolbrún, Stefán og Sturlaugur stendur á myndinni. Ekki kemur fram hvar þessi mynd er tekin né veit ég deili á Kolbrúnu. Myndin gæti verið úr Tjaldanesi og t.d. frá 1943. Eitthvað má kannski ráða í húsakostinn á myndinni. Bræðurnir eru, eins og oft fyrr á myndum, líkt klæddir. Báðir í eins peysum og með einhverskonar hjálma. Öll horfa börnin hálf tortryggilega í átt að myndavélinni. Held að þetta sé eina myndin af mér á þessum aldri með ömmu Laugu. Myndin er furðu skýr og góð og lítið þurfti að laga hana. Amma hefur brugðið sér í lopapeysuna utanyfir svuntuna áður en hún brá sér út. Ég set olnbogan í ömmu um leið og sný mér að myndatökumanninum,sem ég held að hafi verið mamma. Mér þykir mjög vænt um þessa mynd. Þessi mynd er úr albúmi sem Amma Lauga átti. Pabbi hefur skirfað við myndina: Jeppi á hlandforinni á Efri-Brunná. Ekki nákvæmlega vitað hvenær myndin var tekin, en trúlega hægt að finna það út með einhverjum skekkjumörkum útfrá því hvenær hundurinn lifði og út frá tröppunni. Það margt athyglisvert við myndina. Í fyrsta lagi er myndin mjög óskýr, jafnvel þótt ég hafi lagað hana talsvert í myndvinnsluforiti og því spurning hversvegna hún var yfirhöfuð sett í albúmið. Var þetta merkilegur hundur ? Í öðru lagi sést í afar lélegan og ónýtan pall og tröppur. Svo lélegur er pallurinn að hann snarhallar og einn fótur sést fara í gegnum hann. Í þriðja lagi hefur sá sem tók myndina ákveðið að taka frekar mynd af hundinum, heldur en af þremur manneskjum sem standa á pallinum. Og aftur...er þetta merkilegur hundur ? Í fjórða lagi getur nú verið skemmtilegt fyrir þá sem voru á pallinum að þekkja sína fætur. Fyrsta heimili Guggu og Lóa var kjallaraíbúð að Hvolsvegi 21 á Hvolsvelli. Húsið allt var eign Kaupfélags Rangáreyinga. Fyrsta símanúmerið var 487 8394. Fyrir framan húsið er bíll númer tvö; Lada Lux með númerið L2317. Bíllinn var keyptur úr Þykkvabænum á krónur 120.000, sem voru nokkurnveginn þreföld mánaðarlaun. Íbúðin var þriggjaherbergja en með þeim annmarka að klósettið var fram á gangi. Eitt sameiginlegt þvottahús var fyrir allt húsið. Nokkuð er enn til af fyrstu búslóðinni; t.d. pottar. Þarna bjuggu þau alsæl frá nóvember 1984 til ágúst 1986 en þá fluttu þau til Reykjavíkur. Er núna búinn að setja inn 15 myndir úr fjölskylduferðinni í Dæli í sumar. Ætlaði að vera löngu búinn að þessu. Ekki tók ég nú myndir af öllum og margar sem ég tók voru ekkert sérstakar - birti eiginlega bara þær bestu. Slóðin hér. Læt fylgja með þessa yndislega mynd af Birnu Maríu. " Upprunalega byrjuðum við á þessu þegar við þurftum að þurka hjólin á vagninum eftir að hafa verið úti að labba með hann í bleytu - svona áður en við ókum vagninum inn í hús - en svo varð þetta bara svo skemmtilegt að við gerum þetta orðið reglulega líka í alveg þuru veðri " sögðu þau Birna og Bjarni aðspurð um þetta skrýtna athæfi. Jæja loksins hef ég lokið við að vinna úr myndunum mínum. Nú er ég búinn að vinna samtals 70 myndir og setja þær inn á Flickr síðuna mína. Rikki á reyndar sumar myndirnar en hann fór með snjallan síma sem tók furðu góðar myndir. Þá hef ég skrifað miklar upplýsingar við allar myndirnar þannig að þær verða vonandi meira lifandi. Flickr slóðin er eins og áður http://www.flickr.com/photos/guggaogloi/ Lítið endilega á myndirnar og textan ! |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|