Þessi mynd var vel merkt 1971. Ég og Sigga komin á kaf í fóðurbætispoka á bæjarhlaðinu. Ég man eftir þessum pokum; þeir voru vel þykkir (held að þeir hafi verið grænir). Ég man einnig eftir að hafa leikið mér í þeim....hafa farið ofan í þá og hoppað um. Man að það var erftitt að koma þeim uppfyrir herðarnar og standa upp ef maður féll. Tómum pokum var safnað saman í fjósinu eða mjólkurhúsinu og mynduðu þeir mjúka dyngju þegar hrúgan hækkaði. Þeir svo brenndir reglulega og varð nokkuð bál af því þetta var eldmatur góður. Ég man þó ekki eftir þessari myndatöku enda bara fimm ára. Reikna með að mamma hafi tekið myndina og sennilega hjálpað okkur í pokana.
0 Comments
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|