Þessi mynd er tekin við ákveðið tilefni. Þetta er árið 1980 á ári trésins. Þetta vor suðaði ég í pabba og mömmu um að gerður yrði garður fyrir aftan húsið okkar á Efri Brunná... og kannski afþví að það var átak í trjárækt (ár trésins)... eða að mömmu leist svona vel á þetta...þá samþykktu þau það að lokum. Ég varð ákaflega glaður. Ég hóf undirbúning; mældi út fyrir plöntum, pantaði plöntur, dreifði skít og tætti upp trjábeð. Ég lá í bókum og blöðum um skóg- og garðrækt. Svo var farið í að setja niður. Ég fékk til liðs við mig yngri systur mínar og hér á myndinni er búið að hola niður fyrstu plöntunni; brekkuvíði. Prikið sem Helga heldur á var mælieiningin milli plantnanna. Það kom á daginn að ég hafði það of stutt....plönturnar dugðu ekki á allt svæðið. Þetta sumar og tvö þau næstu annaðist ég trjárækt í garðinum og plönturnar uxu flestar vel. En þessi garðagerð átti eftir að draga dilk á eftir sér svo um munaði. Það kom að því að ég var ekki til taks lengur á sumrin til að annast garðinn. Mamma tók við því hlutverki og garðurinn óx og dafnaði sem aldrei fyrr. Og áður en mamma og pabbi hættu að búa höfðu þau búið til annan garð á Brunná (bláa húsið) og tekið nokkra hektara lands frá beit og sett undir skógrækt. Og frá því að jörðin var seld hafa pabbi og mamma annast tvo garða; Brunná og á Alftanesinu. Sumarlangt eru þau að strita í görðum sínum og mamma þó sínu meira. Garðarnir eru alltaf snyrtilegir og trjávöxtur mjög fallegur. Áður en ég hóf garðagerðina 1980 hafði ég aldrei séð mömmu í garðavinnu nema að taka upp kartöflur og skera rababara. Pabbi tætti kartöflugarðinn og ræktaði fóðurkál. Svo sannarlega var ár trésins örlagavaldur í fjölskyldunni. Ég hugsjónarmaðurinn er þó í dag varla meira en miðlungs garðyrkjumaður.
0 Comments
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|