Myndin, sem Keli tengdapabbi tók, er líklega tekin haustið 1993 og sýnir hversu illa laugin var farin. Árið 1995 var ný sundlaug tekin í notkun og þessi rifin. Þetta ágæta hús varð upphaf fræðslu á Laugum og þá fyrst sundkennslu. Gistu þá nemendur í laugarhúsinu meðan á sundnámskeiðum stóð. Reimt þótti lengst af í húsinu og voru nemendur á Laugum alveg fullvissir um draugagang þar og urðu margir varir við einkennilegan ljósa- og umgang í húsinu.
0 Comments
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|