Hugsanlega má rekja áhuga minn á ljósmyndun alveg aftur til þess þegar mamma gaf mér gamla myndavél sem hún átti. Þetta var nokkur hlunkur sem ég man því miður ekkert hvað hét. Ég var þá sennilega 10 ára.
Ég tók ekki mikið af myndum á fyrstu myndavélina. Sennilega má það rekja til þess að ekki var áhugi minn rosalegur og svo hitt að mjög dýrt var að láta framkalla myndir. Svo kom líka fljótlega í ljós að flestar myndir mínar voru alls ekki góðar þegar þær komu úr framköllun. Hjólin fóru ekki að snúast fyrr en ég eignaðist Kodak vél, létta og meðfærilega með festingu fyrir flasskubba, sem snerust eftir notkun. Á þessa vél tók ég nokkuð af myndum og rötuðu sumar þeirra í myndaalbúm. Veit í raun ekkert hvað varð af öllum hinum. Eftir að ég komst í framhaldsskóla tók ég í mig eina verstu sérvisku sem ég hef borið. Ég las grein eftir mann sem hélt því fram að ljósmyndin var fölsuð heimild augnabliksins. Mynd segði ekkert. Ég heillaðist af þessu og tók ekki neina einustu mynd í 4 ár. Næstu myndavél fékk ég gefins frá tengdapabba uppúr tvítugu, en hann hafði mikinn áhuga á ljósmyndun á þessum tíma. Þetta var alvöru Olympus vél með nokkrum linsum. Ég gafst hinsvegar upp á burðinum á öllum þessum búnaði og hef ekki síðan verið með svoleiðis útbúnað. Seldi vélina og fékk mér sjálvirka Olympus vél með mikilli zoom linsu. Átti hana í mörg ár og tók vélin fínar myndir. Svo komu nokkur mögur ár og hætti ég að taka myndir í 9 ár eða frá 1995 - 2004 þegar starfræna bylgjan hófst. Sem betur fer tók Gugga mikið af myndum á þessu tímabili. Í dag nota ég Nicon P90 og hef ekki í hyggju að fara í neitt flóknara.
0 Comments
Leave a Reply. |
Þitt álit ?Segðu endilega þitt álit með því að nota athugasemdakerfið (comments).
Sendu mynd !Átt þú skemmtilega mynd í fórum þínum ? Skanna gamlar myndir og set á bloggið ef þig langar til. Hafðu samband !
Eldri innlegg
July 2013
|