Á sumardaginn fyrsta hélt mamma (Birna Lárusdóttir) fyrirlestur um "Staðarfellsstelpurnar" Fyrirlesturinn var um líf og reynslu ungu stúlknanna sem komu í kvennaskólann á Staðarfelli. Nálgun mömmu á efninu var mjög einlæg, mannleg og skemmtileg þar sem hún kynnti fyrst og fremst upplifun stúlknanna sjálfra á skólanum og vistinni þar. Pabbi (Sturlaugur Eyjólfsson) hjálpaði til við fluttninginn og las beinar tilvitnanir úr fjölmörgum viðtölum sem mamma hafði tekið. Fyrirlesturinn tók um klukkustund í fluttningi og er byggt á lokaritgerð mömmu úr BA námi í þjóðfræði. Fyrirlesturinn var fjölsóttur og þurfti hluti fólks að standa. Vegna klúðurs skipuleggjara Jörfagleðinnar þá voru bara fimm við upphaf fyrirlestursins en 50 þegar honum lauk. Mörgum fannst miður að hafa misst af byrjunni.
1 Comment
Jóhannes Kristinsson
5/3/2017 09:57:56 pm
Er möguleiki að nálgast þessa ritgerð?
Reply
Leave a Reply. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|