Nú hef ég búið rúm þrjú ár hér í Búðardal. Fyrir fram hafði ég þær hugmyndir um veðurfar að hér væri vindasamt og kalt. Sem Saurbæingur fannst mér í uppvexti og æsku sem að í Saurbæ væri mun betra veður. Hvort það er rétt...hef ég efast um síðustu ár.
Það er að sönnu frekar næðingssamt í Búðardal og sumarhiti er ekki eins hár eins og t.d. víða í Miðdölum eða á Laugasvæðinu. En á móti kemur að hér verður nær aldrei mjög hvasst. Það sannast nú í því leiðindaveðri sem ber nánast niður allstaðar á landinu. Vindur er hvass allt í kring en hér í Búðardal er vindhraði mun minni. Þetta á við um allar áttirnar fjórar. Austanáttin er besta áttin hér. Oft hæg, björt og hlý. Sólskin er mikið hér vegna þess hversu langt er í fjöll. Sólin kemur snemma upp og sest seint. Þessir löngu sólskinsdagar hafa góð áhrif á sálartetur fólks, sérstaklega þegar daginn tekur að stytta. Hér er oft lítil sem engin úrkoma í norðanáttum og rigningin er líka minni í sunnan áttum heldur en t.d. í Borgarfirði og á Suðurlandi. Heildarúrkoma hér er alls ekki mikil. Mér hefur verið sagt að manni sem búinn er að búa í 50 ár í Búðardal að þar hafi aðeins verið þrjú tré fyrir 35 árum síðan. Bæði uxu þau afar hægt og svo var áhugi á svoleiðis gróðri ekki mikill. Nú vex hér mikill trjágróður um allt þorp og beggja vegna við það. Sum tré eru orðin tvær - þrjár mannhæðir og veita skjól. Þessu ber að þakka áhugasömum íbúm en ekki síður er ljóst að veðurfar er hér það gott að vel má rækta hér tré. Eiginlega háir selta meira ræktunarstarfinu heldur en kuldi og vindar. Sennilega er vandfundinn staður sem veðurfar "passar" manni algjörlega.
0 Comments
|
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|