Þeir sem áhuga hafa af þjóðmenningu og ekki þekkja vefinn www.ismus.is ættu endilega að skella sér þar í heimsókn.
Vefurinn byggist á því að notuð sé leit. Prufið að slá inn leitarorðinu Efri-Brunná. Og viti menn... þarna birtast fullt af hljóðupptökum af Sturlaugi Eyjólfssyni, þar sem hann segir frá ýmsu þjóðlegu úr æsku sinni. Það má slá inn fleiri leitarorðum, t.d. Skarð og þar má hlusta á rímur kveðnar. Þá er kort með kirkjum landsins og þar undir fullt af myndum af öllum kirkjum. Ísmús vefurinn er samstarfsverkefni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Tónlistarsafns Íslands.
1 Comment
Nú nýverið rakst ég á tilurð MA ritgerðar, sem fjallar um bréf Eggerts Björnssonar frá Skarði. Það er Gunnar Örn Hannesson nemi í sagnfræði sem hefur unnið að rannsóknum bréfasafnsins. Ritgerðin er á Skemmunni en lokuð. Því þarf að bregða sér í Bókhlöðuna eða hafa samband við höfund til að lesa hana. Það væri nú alveg nógu fróðlegt. Hér fylgir titilsíða. Slóð hér á Skemmuna.
Ritgerðin sem hér fylgir mun leitast við að athuga bréf sýslumannsins Eggerts Björnssonar (1612-1681), efni þeirra og vitnisburð. Eggert tók við embætti í Barðastrandarsýslu árið 1636 og gegndi því til dauðadags eða samtals í 45 ár. Lengst af bjó Eggert á Skarði á Skarðsströnd og er hann jafnan kenndur við þann stað þegar hans er getið í ræðu eða riti. Að stærstum hluta eru bréf Eggerts varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands en þar má finna um þrjúhundruð bréf sem honum má eigna. Flest þeirra eru í bréfabók sem við hann er kennd: Bréfabók Eggerts ríka Björnssonar á Skarði 1632-1673. Einnig leynast bréf Eggerts í Biskupsskjalasafni og reyndar víðar í Þjóðskjalasafni. Utan Þjóðskjalasafns má finna bréf Eggerts í handritum í Árnastofnun í Reykjavík sem og í Landsbókasafni. Loks má finna bréf Eggerts í prentuðum frumheimildum. Það er meginmarkmið ritgerðarinnar að gera grein fyrir bréfabók Eggerts, feril hennar og skjalfræði sem og að gera grein fyrir þeim bréfum Eggerts sem liggja utan bréfabókar hans. Þá verður varpað ljósi á bréf Eggerts og gefin sýnishorn af efni þeirra, einkum þeim sem finna má í bréfabók hans. Ritgerðinni er þannig ætlað að vekja menn til meðvitundar um efni bréfabókarinnar og vonandi leiðir sú viðleitni til þess að efni hennar verður gefinn nánari gaumur í sagnaritun um tímabilið þar sem það á við. Mikill hluti þeirrar rannsóknarvinnu sem fram hefur farið við ritgerðarsmíðina sjálfa hefur verið hluti af undirbúningsvinnu fyrir útgáfu bréfanna enda varð útgáfa eða útgáfuhugmyndir mjög fljótlega að einu markmiðanna í rannsóknarferlinu. Bréfabókin, sem og bréf í öðrum söfnum hafa þegar verið skrifuð upp, ágrip af þeim verið tekin saman sem og sérstakrar skrár. Það er því ásetningur höfundar að bréfin líti dagsins ljós á prenti fyrr en seinna. Nú vill svo til að tvær virkar einingar í ferðaþjónustu í Dölum hafa verið auglýstar til sölu. Skriðuland hefur verið á sölu frá því í desember og nú nýlega bætist Gistiheimilið Bjarg við. Báðir staðirnir hafa verið með gistingu og matsölu.
Á landsvísu hefur fjárfesting í ferðaþjónustu vaxið hratt síðustu fjögur árin, eða alveg frá hruni 2008. Bæði gistirýmum og ferðamönnum fjölgar hratt. Á hverju ári hafa verið sett met í fjölda ferðamanna og enn stefnir í met. Í því ljósi og að umferð um Dali marfaldaðist með tilkomu vegsins yfir Þroskulda, ættu einhverjir að sjá sér leik á borði. Ég er alveg viss um að hér er um raunhæf tækifæri að ræða. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|