Nú vill svo til að tvær virkar einingar í ferðaþjónustu í Dölum hafa verið auglýstar til sölu. Skriðuland hefur verið á sölu frá því í desember og nú nýlega bætist Gistiheimilið Bjarg við. Báðir staðirnir hafa verið með gistingu og matsölu.
Á landsvísu hefur fjárfesting í ferðaþjónustu vaxið hratt síðustu fjögur árin, eða alveg frá hruni 2008. Bæði gistirýmum og ferðamönnum fjölgar hratt. Á hverju ári hafa verið sett met í fjölda ferðamanna og enn stefnir í met. Í því ljósi og að umferð um Dali marfaldaðist með tilkomu vegsins yfir Þroskulda, ættu einhverjir að sjá sér leik á borði. Ég er alveg viss um að hér er um raunhæf tækifæri að ræða.
0 Comments
Leave a Reply. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|