Dalamenn halda fyrst og fremst tvennu vel til haga. Annarsvegar að Dalir eru söguhérað og hinsvegar að úr Dölum hafa komið nokkur af bestu og vinsælustu skáldum landsins. Svo vel vill til að ágæt heildarmynd er nú til að af ævi og verkum Jóhannesar úr Kötlum á internetinu. Það eru afkomendur Jóhannesar sem halda nafni hans svo glæsilega á lofti með rafrænum hætti. Vefurinn www.johannes.is er vel gerður með miklum fróðleik. Þar er margt að finna. T.d. hafa ýmsir af bestu bókmennasérfræðingum landsins ritað greinar, úrval úr ljóðum er birt, útgáfuskrá, myndasafn og margt fleira. Afar skemmtilegt er að skoða "fréttir". Lítið endilega inn á vefinn. Smella hér. Það er spurning hvort svona vefur geti ekki verið afkomendum Elínborgar Lárusdóttur hvatting eða fyrirmynd um að gera eitthvað svipað.
0 Comments
Síðasta áratuginn eða svo hefur greiðslumark í mjólk farið heldur vaxandi í Dölum. Árið 1998 var greiðslumarkið 1.625.451 lítrar, árið 2001 var greiðslumarkið litlu minna eða 1.617.166 lítrar en árið 2009 var það komið upp í 1.747.073 lítra. Greiðslumarkið hefur því vaxið um rúmlega 100.000 lítra.
Tölur teknar úr hagtölum landbúnaðarins 2010 |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|