Neðangreint línurit sýnir hvernig fólki í Dölum hefur fækkað undanfarin 13 ár. Smellið annaðhvort á "Fullscreen" eða "plúsinn" hér fyrir neðan til að stækkka myndina.
0 Comments
Auðarskóli tók þátt í verkefninu Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni þetta árið sem undangengin ár. Að þessu sinni lenti skólinn í þriðja sæti og var það ritgerð Elínar Huldar Melsteð Jóhannesdóttur 9. bekk sem fékk þessi verðlaun og er hún vel að þeim komin. Verðlaunaathöfnin fór fram í Reykjavík og var það Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarráðherra ásamt Unni Birnu Vilhjálmsdóttur sem sáu um veita verðlaunin. Verkefni Elínar er útfærsla á landnámssetri að Hvammi í Dölum. Útfærslan, sem þykir bæði vönduð og ýtarleg, er studd myndum og teikningum. Afar skemmtilegt er að sjá þá tiltrú sem börn í héraðinu hafa á umhverfi sínu og hversu meðvituðu þau eru um mikinn menningararf og sögu. Hægt er að skoða verkefnið í heild með því að hlaða niður skjalinu hér fyrir neðan.
Veltum því fyrir okkur hvað það er að vera Dalamaður og hvað sé svo merkilegt við það ? Í heita pottinum á Selfossi fékk ég einu sinni spurningu sem minnir á fyrrgreinda spurningu. Verið var að tala um Flóamenn og svo kallaða flóamennsku, sem viritst vera frekar neikvætt fyrirbrigði fyrir utanaðkomandi aðila að minnsta kosti. Umræðan fór út í að velta því fyrir sér hvað væri einkennandi fyrir fólk í ákveðnum landshlutum. Þá fékk ég spurninguna; hvað einkennir Dalamenn ? Ég hafði ekki neitt svar á reiðum höndun og eyddist talið.
En eftirá að hyggja tel ég að svarið sé skylt svarinu við spurningunni; Hvað er það að vera Íslendingur ? Það eru sennilega engin sérstök einkenni á Dalamönnum út á við. Þeir eru eins og flest annað fólk. Einkenni Dalamanna er hinsvegar innri upplifun og ef maður er sjálfur Dalamaður þá upplifir maður Dalamenn á jákvæðari hátt. Mér finnst til dæmis Dalamenn skemmtilegri en flest annað fólk. Þeir eru líka í mínum huga duglegri, vitrari og flínkari í höndunum en almennt gerist. Svo eru þeir vel byggðir, fallegir og hraustir. Eina neikvæða sem má finna um Dalamenn er að þeir eru alltof fáir. Allt þetta finnst mér af því að ég er Dalamaður sjálfur. Sennilega má tala um þessa upplifuna okkar á eigin samfélagi sem einhverskonar dalamennsku. Dalamennskan er eitthvað sem Dalamenn hafa mótað og búið til. Þar af leiðandi er Dalamennskan jafn dýrmæt í þeirra augum eins og sjálfstæðið í augum Íslendinga. Og sannarlega hafa Dalamenn barist fyrir tilveru og viðhaldi dalamennskunnar eins og Jón Sigurðsson barðist forðum fyrir sjálfstæði Íslands. Dalamenn hafa reynt að halda úti félagstarfi, hátíðum, skólum, handverki, dvalarheimilum, verslun og þjónustu og búskapi á jörðum sveitanna. Allt þetta er gert í þeirri trú að dalamennskan sé verðmæt og hafi góð áhrif á alla. Óttinn er að dalamennskan tapist og þá verði ekki lengur til Dalamenn. Hlutdeild okkar í dalamennskunni er mikilvæg hún stendur öllum til boða hvort sem við erum fædd og uppalin í Dölum, aðflutt úr öðru héraði eða nýbúar frá öðrum löndum. Dalamennskan er opin öllum og þarf jafnt á nýjum straumum að halda og góðum gömlum siðum. Hún þrífst og dafnar á þátttöku. Virðum horfnar kynslóðir og aldraða Dalamenn sem hafa vökvað og nært dalmennskuna með svita og tárum svo við gætum notið hennar. Berum áfram dalamennskuna til næstu kynslóðar og gerum það vegna þess að við trúum að hún verði börnum okkar og öllum sem að koma til góðs. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|