Nýjasti ferðaþjónustuaðilinn í Dölum er á Fellströnd. Í Vogi er bændagisting og þar er stefnt á rekstur allt árið. Þar er stefnt á einhverskonar hótel. Ferðalangar eiga að upplifa mikla kyrrð, náttúrufegurð og útsýni.
Skoðið endilega glæsilega heimasíðu www.vogur.org
0 Comments
Nú styttist í næstu Ólafsdalshátíð - en hún verður sunnudaginn 12. ágúst. Undanfarnar hátíðir hafa gengið vel og uppbygging staðarins sömuleiðis. Launaður starfsmaður er nú í Ólafsdal stærstan hluta sumarsins (staðarhaldari). Mikil áhersla hefur verið lögð undanfarin ár á viðburði eins og námskeið, gönguferðir, listsýningar og fl. Það er ekki hægt að segja annað en að í dag sé staðurinn orðinn lifandi á ný - allavega yfir sumartímann. Það er Ólafsdalsfélagið sem á heiður af því að koma lífi í staðinn á ný (eftir að pabbi var búinn að bjarga húsinu).
Ýmsar upplýsingar má finna á vef félagsins; www.olafsdalur.is Hljómsveitin No way var ein af skólahljómsveitum Auðarskóla í vetur og sú hljómsveit sem gerði hvað víðreisast. Hér flytur hljómsveitin frumsamið lag og texta eftir söngvaran (Hlöðver S. Oddsson). Gítarleikarnir eru 13 ára en trommarinn og bassaleikarinn eru 11 ára.
Með góðum síma og skemmtilegri músík er hægt að skapa mars í Búðardal
Nú hefur farið í loftið ný heimasíða fyrir Rjómabúið á Erpsstöðum. Þetta væri nú varla til frásagnar á mínum vef, nema vegna þess að heimasíðuna hannaði og vann ég til sjálfur. Notaði til þess ókeypisútgáfuna hjá Weebly. Lítið endilega inn. www.erpsstadir.is Ég rakst nýverið á skýrslu frá Fornleifastofnun um dys, leiði og hauga í Saurbæ. Skýrslan er frá árinu 2011 og fjallar um athuganir á hugsanlegum kumlum í sveitinni. Einn staðurinn sem var athugaður var "Feðgalautin" sem er á landamerkjum Máskeldu og Efri-Brunná. Ekkert kuml fannst þar en samkvæmt kenningum um staðsettningu á kumlum þá gæti þetta einmitt verið staður fyrir slíkt. Almennt má segja að niðurstaða skýrslunnar sé að ekkert hafi í raun fundist við þessar rannsókn í Saurbæ. Aðeins staðfest kuml í landi Ytri Fagradals og svo funndust mannabein í Belgsdal uppúr 1920. Skýrslan er ekki mjög löng og skemmtileg aflestrar; m.a. er nokkuð af myndum í henni. Ég læt hana fylgja hér með.
Þeir sem áhuga hafa af þjóðmenningu og ekki þekkja vefinn www.ismus.is ættu endilega að skella sér þar í heimsókn.
Vefurinn byggist á því að notuð sé leit. Prufið að slá inn leitarorðinu Efri-Brunná. Og viti menn... þarna birtast fullt af hljóðupptökum af Sturlaugi Eyjólfssyni, þar sem hann segir frá ýmsu þjóðlegu úr æsku sinni. Það má slá inn fleiri leitarorðum, t.d. Skarð og þar má hlusta á rímur kveðnar. Þá er kort með kirkjum landsins og þar undir fullt af myndum af öllum kirkjum. Ísmús vefurinn er samstarfsverkefni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Tónlistarsafns Íslands. Nú nýverið rakst ég á tilurð MA ritgerðar, sem fjallar um bréf Eggerts Björnssonar frá Skarði. Það er Gunnar Örn Hannesson nemi í sagnfræði sem hefur unnið að rannsóknum bréfasafnsins. Ritgerðin er á Skemmunni en lokuð. Því þarf að bregða sér í Bókhlöðuna eða hafa samband við höfund til að lesa hana. Það væri nú alveg nógu fróðlegt. Hér fylgir titilsíða. Slóð hér á Skemmuna.
Ritgerðin sem hér fylgir mun leitast við að athuga bréf sýslumannsins Eggerts Björnssonar (1612-1681), efni þeirra og vitnisburð. Eggert tók við embætti í Barðastrandarsýslu árið 1636 og gegndi því til dauðadags eða samtals í 45 ár. Lengst af bjó Eggert á Skarði á Skarðsströnd og er hann jafnan kenndur við þann stað þegar hans er getið í ræðu eða riti. Að stærstum hluta eru bréf Eggerts varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands en þar má finna um þrjúhundruð bréf sem honum má eigna. Flest þeirra eru í bréfabók sem við hann er kennd: Bréfabók Eggerts ríka Björnssonar á Skarði 1632-1673. Einnig leynast bréf Eggerts í Biskupsskjalasafni og reyndar víðar í Þjóðskjalasafni. Utan Þjóðskjalasafns má finna bréf Eggerts í handritum í Árnastofnun í Reykjavík sem og í Landsbókasafni. Loks má finna bréf Eggerts í prentuðum frumheimildum. Það er meginmarkmið ritgerðarinnar að gera grein fyrir bréfabók Eggerts, feril hennar og skjalfræði sem og að gera grein fyrir þeim bréfum Eggerts sem liggja utan bréfabókar hans. Þá verður varpað ljósi á bréf Eggerts og gefin sýnishorn af efni þeirra, einkum þeim sem finna má í bréfabók hans. Ritgerðinni er þannig ætlað að vekja menn til meðvitundar um efni bréfabókarinnar og vonandi leiðir sú viðleitni til þess að efni hennar verður gefinn nánari gaumur í sagnaritun um tímabilið þar sem það á við. Mikill hluti þeirrar rannsóknarvinnu sem fram hefur farið við ritgerðarsmíðina sjálfa hefur verið hluti af undirbúningsvinnu fyrir útgáfu bréfanna enda varð útgáfa eða útgáfuhugmyndir mjög fljótlega að einu markmiðanna í rannsóknarferlinu. Bréfabókin, sem og bréf í öðrum söfnum hafa þegar verið skrifuð upp, ágrip af þeim verið tekin saman sem og sérstakrar skrár. Það er því ásetningur höfundar að bréfin líti dagsins ljós á prenti fyrr en seinna. Nú vill svo til að tvær virkar einingar í ferðaþjónustu í Dölum hafa verið auglýstar til sölu. Skriðuland hefur verið á sölu frá því í desember og nú nýlega bætist Gistiheimilið Bjarg við. Báðir staðirnir hafa verið með gistingu og matsölu.
Á landsvísu hefur fjárfesting í ferðaþjónustu vaxið hratt síðustu fjögur árin, eða alveg frá hruni 2008. Bæði gistirýmum og ferðamönnum fjölgar hratt. Á hverju ári hafa verið sett met í fjölda ferðamanna og enn stefnir í met. Í því ljósi og að umferð um Dali marfaldaðist með tilkomu vegsins yfir Þroskulda, ættu einhverjir að sjá sér leik á borði. Ég er alveg viss um að hér er um raunhæf tækifæri að ræða. Dalamenn halda fyrst og fremst tvennu vel til haga. Annarsvegar að Dalir eru söguhérað og hinsvegar að úr Dölum hafa komið nokkur af bestu og vinsælustu skáldum landsins. Svo vel vill til að ágæt heildarmynd er nú til að af ævi og verkum Jóhannesar úr Kötlum á internetinu. Það eru afkomendur Jóhannesar sem halda nafni hans svo glæsilega á lofti með rafrænum hætti. Vefurinn www.johannes.is er vel gerður með miklum fróðleik. Þar er margt að finna. T.d. hafa ýmsir af bestu bókmennasérfræðingum landsins ritað greinar, úrval úr ljóðum er birt, útgáfuskrá, myndasafn og margt fleira. Afar skemmtilegt er að skoða "fréttir". Lítið endilega inn á vefinn. Smella hér. Það er spurning hvort svona vefur geti ekki verið afkomendum Elínborgar Lárusdóttur hvatting eða fyrirmynd um að gera eitthvað svipað. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|