Nokkuð er um liðið síðan seinna kaupfélagið í Dölum fór á hausinn og hafa Dalamenn síðan saknað þess félagsskapar eða talið sig blessanlega lausa við slík félög.
Nú býðist Dalamönnum innganga í Kaupfélag Borgfirðinga, sem merkilegt nokk fór aldrei alveg á hausinn, heldur tórði í gegnum niðurlægðarölduna sem yfir öll kaupfélög gekk. Kaupfélagið á og rekur eina verslun, sem sér um búvöru. Allt annað í þessu stóra veldi er horfið. En...reyndar eiga þeir hlutfé í miklu verslunarveldi Samkaupa. Þá áttu þeir eitt verðmætasta lén Íslands á sínum tíma www.kb.is . En meðan hinn töllaukni KBbanki gat keypt eignir um víða veröld ... neituð kaupfélagsmenn staðfastlega að selja þeim lénið sitt. Nú er það of seint - KB banki fallinn - en kaupfélagið hjarir enn. Fyrir skömmu ákváðu kaupfélagsmenn í Borgarfirði að láta undan þrýstingi, sem alllengi hafði verið til staðar, og stækka félagssvæði sitt. Nú nær það um allt Vesturland. Og þar með Dali. Nú get ég gengið í kaupfélag - rétt eins og ég gerði 13 ára gamall þegar ég gekk í Kaupfélag Saurbæinga Skriðulandi (KSS). Ávinningurinn að því að ganga í félagið eru afsláttarkjör í einu búðinni í Búðardal - Samkaup Strax. Heil 2% og sérstök tilboð að auki. Nú hyggst ég ganga í kaupfélagið og svo kannski með tímanum verð ég stjórnarformaður í kaupfélagi og feta þar með í fótspor föður míns.
0 Comments
Leave a Reply. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|