Minning jóla úr DölumÞegar minnst er jólastemmingarinnar sem maður upplifiði í æsku er af nógu að taka. Við systkinin ólumst upp á kúabúi og því settu mjaltir ramma um jólahaldið.
Yfirleitt minnist ég þess að hafa vaknað í fyrra falllinu á aðfangadagsmorgun. Þetta var mjög sérstakur morgun. Á aðfangadagsmorgun var ryksugað í síðasta sinn fyrir jólin. Það var "létt" ryksugun, því á Þorláksmessu var "vönduð" ryksugun. Það var líka skipt á rúmum. Þá var skipulögð röð okkar allra í jólabaðið, en vegna þess að við vorum með rafmagnshitun þurfti að dreifa álaginu svo að hitakúturinn hefði undan að hita baðvatnið. Við vorum að skjótast allan daginn í sturtu. Á aðfangadagsmorgun var einnig hafist handa við að skreyta jólatréð, sem í fyrstu var lítið gervitré með 20 ljósum. Þegar því var lagt tóku við lifandi tré. Var í síðari tíð trén fengi úr sveitinni, nánar tiltekið úr skógræktinni í Staðarhólsdal. Það var hálfgert markmið að vera búin að skreyta jólatréð aður en fréttir og barnaefni hófst í sjónvarpinu kl. 13.00. Barnaefnið á aðfangadag var í æsku - ( fyrir 1980) - sérstakt, því íslenska sjónvarpið hafði ekki haft mikið fyrir slíku efni ef undanskilin er "Stundin okkar". Þannig mátti t.d. bóka að sýndar væru skemmtilegar teiknimyndir sem voru fáséðar. Barnaefni lauk um kl. 16.00 og við tók um það bil klukkustund sem EKKERT var að gera, en svo var farið að undirbúa sig til kirkju. Pabbi fór fyrr í fjós þetta kvöld og var farinn kl. 17.00. Svo lengi sem ég man eftir mér fór ég í kirkju með mömmu og systrum mínum; fyrst bara Siggu. Þetta gat mamma leyft sér því hún þurfti ekki að hugsa um mat þetta kvöldið. Sennilega hefur þessi kristilega áhersla á jólum, sem mamma stóð svo ákveðið fyrir, markað mig til frambúðar til betri vegar. Ég man aldrei eftir þvi að kirkjan væri full - en það voru alltaf sömu fjölskyldurnar sem mættu. Það var líka alltaf sami prestur alla æsku mína. Síra Ingiberg þreytti fólk ekki á löngum messum þetta helga kvöld - þær voru yfirleitt um það bil 45 mínútur. Eftir messu fórum við beint til Afa og ömmu. Það var mjög hátíðlegt að stíga þar inn fyrir þröskuldinn. Jólamessan í útvarpinu var yfirleitt ekki alveg búin og hún hljómaði hátt um allt hús. Amma var hin kátasta með sína svuntu að útbúa matinn. Afi sá um að leggja á borðið í stofunni. Nú hófst erfiðasta biðin því pabbi var enn að mjólka í fjósinu. Við systkinin hlupum með nokkura mínútna millibili inn í svefnherbergi, en þaðan sáum við ljósin í fjósgluggunum. Við biðum eftir að þau slokknuðu - það var óbrigðult merki þess að fjósverkum væri lokið. Þá átti pabbi eftir sitt jólabað og að koma sér í sparifötin. Í stofunni beið dúkað borð og jólapakkar. Afi og amma voru ekki með mikið af pökkum, þeir fylltu blómagrind eina langa á fótum. Allir áttu þarna pakka. Ég var ekki gamall þegar ég áttaði mig á því að svo virtist sem að suma pakkana væri búið að opna. Mamma sagði að það væri vegna þess að amma væri mjög spennt og forvitin um hvað í pökkunum væri og því hefði hún opnað þá á laun. Þessa freistingu skildum við systkinin algjörlega og fyrirgáfum ömmu alveg. En þetta varð líka til þess að pakkarnir frá okkur til þeirra komu alltaf um leið og við - svo amma hefði nú eitthvað til að vera spennt yfir. Við systkinin sátum ekki kyrr. Við eigruðum sömu leiðina hvað eftir annað. Úr eldhúsi í svenherbergi, úr svefnherbergi í stofu og úr stofu í eldhús. Mikið meira var ekki hægt að fara því húsið hjá afa og ömmu er lítið. Samt var þetta ekki langur tími, kannski 30 - 45 mínútur. Þegar pabbi var kominn hús var sest að borðum. Jólamaturinn hjá afa og ömmu samanstóð fyrstu árin alltaf af lambalæri í aðalrétt með tilheyrandi niðursuðumat og soðsósu og grjónagraut(þykkur með rúsínum og rjómalagaður) í eftirrétt með berjasaft í fyrstu en síðar rjómablandi. Malt og appelsín drukkið með. Síðar var boðið upp á niðursoðna ávexti með þeyttum rjóma og ís í eftirrétt. Það var alltaf setið eins til borðs með afa og ömmu á endum. Ég man ekki eftir því að hafa flýtt mér mikið að borða þótt jólapakkar hafi beðið, þvert á móti minnist ég frekar rólegs yfirbragðs. Þegar borðhaldi lauk tók við erfið bið. Uppvask var mikið og taka þurfti af borðum. Ef ég var ekki í uppvaskinu (en það var misjafnt), þá beið ég með afa og pabba í stofunni. Nú bauð amma upp á ávexti; epli og appelsínur. Pabbi fékk sér alltaf epli. Ég reyndi það yfirleitt líka en var oft svo rosalega saddur að ég kom því ekki niður. Aðrir fengu sér yfirleitt ekki þennan ábæti. Nú var komið að því að taka upp jólapakkana. Þeir voru eðlilega flestir til ömmu og afa en við systkinin vissum að við áttum hvert um sig alltaf einn. Þótt amma væri búin að skoða flesta sína pakka þá vissi afi svo sem oftast hvað hann var að fá. Hann tók pakkann bara og hristi hann lítillega og ef það heyrðist glugg, glugg....þá brosti hann sæll á svip. Hann fékk alltaf tvær til þrjár viskýflöskur í jólagjöf. Þegar pakkagleðin var yfirstaðin var boðið uppá aðeins meira jólaöl og konfekt, sem alveg óbrigðullega kom alltaf upp úr einhverjum pakkanum. Svo var kvatt og haldið heim á leið í köldum bíl. Það ver ekki fyrr en ég var kominn í sambúð að ég áttaði mig á hversu sérstakt það var að opna jólapakkana sína kl. 10.00 á aðfangadagskvöld. Á venjulegum heimilum voru allir löngubúnir að opna alla pakka þegar við vorum að byrja. Þegar heim var komið tók við heilög stund í mínum huga, því ég sem elsta barn, fékk þegar ég hafði aldur til, það hlutverk að kveikja á kertunum. Ég tók þetta alvarlega og fylgdist með öllum kertum heimilisins allar hátíðirnar. Það kveikir enn helgar minningar þegar kveikt er á kertum á aðfangadagskvöldi heima hjá mér. Þótt spennan í kringum pakkana hafi eflaust verið mikil sitja ekki miklar minningar vegna þeirra. En eftir pakkaopnun var nóg að gera. Ný leikföng, nýjar bækur eða ný spennandi spil að spila. Um miðnætti var svo komið að smákökkukaffi með öli. Svo var farið í rúmið enda er ég alinn upp á kúabúi þar sem mjaltir stýra öllu - líka jólum.
0 Comments
Leave a Reply. |
Blessaðir DalirnirUndir Dalanna sól, við minn einfalda óð Vefslóðir í DölumDalabyggð
Auðarskóli Búðardalur.is Ungmennabúðirnar Laugum UDN Ólafsdalsfélagið Eiríksstaðir KM þjónustan Nýp Erpsstaðir Lyngbrekka Sólheimar Dalaprestakall Fellsendi Glaður Eldri innlegg
May 2013
|