Fyrir mína kynslóð var sláturstíð stór atburður og hafði víðtæk fjárhagsleg og félagsleg áhrif. Sláturstíðin var reglubundinn dagskrárliður í dagatali sveitafólksins; svona eins og heyskapur og sauðburður. Ég ólst upp 75 metrum frá sláturhúsinu í minni sveit þannig að áþreyfanlega varð maður var við atburðinn í allri sinni dýrð.
Tilfinningar mínar til stláturtíðarinnar voru blendnar í uppeldinu. Pabbi tók í þátt vinnunni þegar ég var yngri og vann þá við fláningu, sem var með erfiðari störfum í húsinu í þá daga. En það var vel borgað og um það snerist að mestu þátttaka sveitafólksins í sláturtíðinni; að vinna sér inn svolítinn aur. Ég tók hinsvegar aldrei sjálfur þátt í sláturstíð og harðneitaði öllum uppástungum um að krækja mér í pening á þennan veg. Vann þó tvívegis í ágúst eftir heyskap við að undirbúa sláturhúsið undir slátrun. Félagslegi þáttur sláturstíðarinnar hafði samt sennilega meiri áhrif á sveitalífið heldur en aurarnir sem fólkið fékk. Það var stemming í vinnunni. Kátt á Hjalla í matar- og kaffitímum. Sumir gistu í skúrum og báru með sér framandlegan keim. Og eitt er víst að í sláturhúsum um allt land fundu einstaklingar ástina sína. Ég þekki nokkur hjón sem kynntust í sláturstíðinni. Jú jú það flugu einnig reglulega fiskisögur um framhjáhöld og fleira; jafnvel slagsmál. Nú eru ekki lengur sláturstíðir í sveitum landsins, þar sem búið er að stórfækka sláturhúsum eftir að samgöngur bötnuðu og vélvæðing húsanna óx. Nokkur stór sláturhús starfa nú með farandverkafólk frá erlendum starfsmannaleigum, sem sjá um að koma lömbunum okkar í frysti. En þrátt fyrir að ég hafi ekki verið hrifinn af sláturstíðum yfirleitt, verð ég að viðurkenna að það var notarlegt að sofna á kvöldin með óm af umferð og skarkala frá upplýstu sláturhúsinu. Þegar sláturstíðinni lauk endanlega uppúr miðjum október; með nautgripaslátrun og öll hús orðin dimm og þögul fyrir utan svefnherbergisgluggann minn - þá varð skyndilega einmannalegt. Haustinu lokið og klárlega kominn vetur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |